Archives for June 2004
Enn af Pixies
30 June 2004 | molar | 1 Comment
Ég er enn í skýjunum með gærkvöldið. Yfir mig ánægð með tónlistina, staðsetninguna og að það skyldi ekki rigna. Snilld þessi leikvangur. Hvar sem maður var staddur var hægt að sjá sviðið ágætlega. Eitthvað annað en Laugardalshöllin, þar sem meðalháar stúlkur eins og ég eiga bágt með að sjá annað en hnakkann á manninum fyrir [...]
Pixies
30 June 2004 | molar | 4 Comments
Til að komast á tónleikana í gær þurftum við að ganga gegnum þykkan skóg, en komumst að lokum. Upp úr skóginum reis stærðarinnar hringleikahús, Kindl-Bühne: Gangan langa sneiddi framan af prógrammi Franz Ferdinand, en við náðum okkur fljótt á þeirri sorg því restin hjá þeim var alveg ljómandi. Ash fylgdi þeim með ekki síðra prógrammi. [...]
Þýskur sími
29 June 2004 | molar | 1 Comment
Þá er aðlögun okkar að Þýskalandi að ná fullkomnun. Búin að festa okkur farsímanúmer! Reyndar bara í annan símann (Andrésar) fyrst um sinn, þannig að þeir sem vilja ná í Rúnu þurfa að ræða við ritarann hennar fyrst. Íslensku númerin okkar renna út um mánaðarmótin. Fyrir þá sem áhuga hafa, þá er númerið +49 176 [...]
Darwinsk íbúðarleit
28 June 2004 | molar | 3 Comments
Þýskir leigusalar sýna íbúðir sínar gjarnan á sunnudagseftirmiðdögum. Í gær skoðuðum við eina í bleiku húsi í vinsælu hverfi. Ásamt okkur var mætt á annan tug vongóðra. Svo mætti leigusalinn á tilskildum tíma og við löbbuðum í einfaldri röð á eftir honum, skoðuðum íbúðina og fylltum út eyðublað. Heppna parið á von á símhringingu um [...]
Parmesan og Pixies
27 June 2004 | molar | 1 Comment
Við vorum að enda við að elda kvöldmat handa sambýlingum okkar, parmesan-kjúkling með hrísgrjónum, brauði og salati. Þeim virtist líka maturinn vel, enda allt saman hraustir drengir nýkomnir úr blaki, brimbrettaæfingu, veggjaklifri eða guð má vita hverju. Þessir strákar eru afskaplega fínir og boðnir og búnir til að vera okkur innan handar ef við þurfum. [...]
Smekkvísi Þjóðverja
26 June 2004 | molar | No Comments
Hver sem heldur því fram að Þjóðverjar séu ekki smekkvísir má vita þetta: Í dag var tilkynnt að tónleikar Whitney Houston, þann 2. júlí næstkomandi, féllu niður vegna ónógrar miðasölu. Þjóðin hefur í sameiningu hunsað Whitney auk frænku sinnar, Dionne Warwick, og Natalie Cole sem áttu að hita upp fyrir hana. Nú situr þessi sama [...]
Bjánar i bönunum
26 June 2004 | molar | No Comments
Ég var ánægð með að finna að ég hef samgöngukerfi Berlínarborgar enn nokkuð skýrt í höfðinu eftir árið mitt hér. Mér finnst svo gaman að stíga upp í lest án þess að líta á kortið eins og einhver túristi. Ég vildi samt ekki búa að þessari þekkingu ein heldur leyfa Andrési svolítið að spreyta sig, [...]
Hverfið okkar
26 June 2004 | molar | No Comments
Fyrsta mánuðinn búum við í herbergi á fimmtu hæð við Lausitzer Platz í Kreuzberg-hverfinu. Meginþorri nágranna okkar virðist eiga rætur að rekja til Tyrklands. Í staðinn fyrir að hanga á krám hanga tyrkneskir karlmenn á spilaklúbbum. Þeir líta alveg eins út og krár, nema það er kveikt á öllum ljósum, engin tónlist spiluð og konum [...]
Sviti og sekkjapípur
24 June 2004 | molar | 4 Comments
Rúna hefur bent mér á að kannski þurfi ég að endurskoða hvernig ég forgangsraða farangri. Við lögðum nefnilega leið okkar í apótek áðan til að kaupa svitasprey, enda hafði ég ekki séð ástæðu til að flytja svoleiðis milli landa. Sumum þykir hins vegar kúnstugt að ég hafi á sama tíma séð mér fært að pakka [...]
Skrýtnir dagar
24 June 2004 | molar | No Comments
Dagurinn í gær var fyrir nokkurra hluta sakir merkilegur. Í fyrsta lagi hélt Andrés uppi samræðum á þýsku. Í öðru lagi talaði Andrés um fótbolta. Og í þriðja lagi talaði Andrés um fótbolta á þýsku. Það undarlegasta var að hann gerði þetta með stakri prýði þrátt fyrir reynsluleysi í hvoru tveggja. Þið ættuð ekki að [...]
Tvö eitt
24 June 2004 | molar | 1 Comment
SO-36 er gamla póstnúmerið í hverfinu sem við búum í þessa dagana. Sama nafn ber klúbburinn sem Iggy Pop og aðrar pönkstjörnur spiluðu gjarnan á í gamla daga. Í gær fylltu klúbbstjórar SO-36 dansgólfið af bekkjum og hengdu breiðtjald við enda þess. Klukkutíma fyrir leik Þýskalands og Tékklands var staðurinn fullur. Það var dáldið skemmtilegt [...]
Apar og aðrir menn
23 June 2004 | molar | 2 Comments
Í Berlín gengur górilla laus. Lífið gengur annars sinn vanagang hjá flestum sýnist mér… Slysið með kristalbjórinn í gær sýnir og sannar það sem afi sagði nokkrum sinnum við okkur Rúnu áður en við lögðum í hann: Hann er varasamur, bjórinn í Berlín!
Komin!!
23 June 2004 | molar | 3 Comments
Jibbí! Þá er bið síðustu mánaða á enda og nýtt líf í Berlín hafið. Núna er tæpur sólarhringur síðan við lentum og við erum nú þegar búin að gera ýmislegt. Í gærkvöldi borðuðum við á Ku´damm og fengum okkur Håagen Dazs (eða hvernig sem það er nú skrifað) í eftirrétt. Smá túristafílingur fyrsta kvöldið. Það [...]
Byrjun
20 June 2004 | molar | 5 Comments
Hérna birtast molar úr ævintýrum skötuhjúanna Andrésar (andres@keinbetreff.net) og Rúnu (runa@keinbetreff.net), þar sem þau reyna að botna í þýskri veröld. Njótið vel.