Komin!!
23 June 2004 | Rúna
Jibbí! Þá er bið síðustu mánaða á enda og nýtt líf í Berlín hafið. Núna er tæpur sólarhringur síðan við lentum og við erum nú þegar búin að gera ýmislegt. Í gærkvöldi borðuðum við á Ku´damm og fengum okkur Håagen Dazs (eða hvernig sem það er nú skrifað) í eftirrétt. Smá túristafílingur fyrsta kvöldið. Það er líka allt í lagi, við erum nú í fríi.. Svo hittum við Sepp, berlínskan kunningja Andrésar, á írskum bar við Håckescher Markt. Greyið maðurinn lagði á sig ferð með trammanum til að drekka með okkur “velkominn-bjór” en fékk ekki betri móttökur en svo að Andrés sturtaði hálfum lítra af Kriztal bjór yfir hann miðjan um leið og þeir tókust í hendur. Ég fer enn að hlæja þegar ég hugsa um það. Sepp fyrirgaf þó móttökurnar og við drukkum nokkra bjóra til að fagna.
Mér finnst æðislegt að vera komin aftur. Lyktin, hljóðin, allt sem minnir á Berlín. Mér fannst meira að segja ofsa gaman að ýta á takkann sem lætur lestarhurðina opnast. Það er gaman að enduruppgötva öll berlínsku smáatriðin sem ég var búin að gleyma. Gaman að vera með Andrési. Gaman að lifa.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Ég hlakka til að fylgjast með ukkur í útlandinu. Passið ykkur á górillunum!
Gaman að heyra hversu vel þetta byrjar!(kannski mínus bjóryfirhellinguna á Sepp, enef ég þekki kauða rétt hefur hann bara hlegið af þessu, enda vanur að sturta yfir sig og aðra hvítvínsglösum í umvörpum! Verður gaman að fylgjast með dvöl ykkar á vefnum þannig maður geti að einhverju leyti upplifað smá deutsches flair hér á klakann ;-) Bið að heilsa Klaus, Jörg, Wolfgang og félögum!
Og gaman að vera nostalgískur í berlínsku sumri. Fagna því annars að stulkur séu farnar að nota lýsingarorðið ,,berlínskur” á svo vel við á björtum sumarkvöldum á Alexanderplatz