Skrýtnir dagar

24 June 2004 | Rúna

Dagurinn í gær var fyrir nokkurra hluta sakir merkilegur. Í fyrsta lagi hélt Andrés uppi samræðum á þýsku. Í öðru lagi talaði Andrés um fótbolta. Og í þriðja lagi talaði Andrés um fótbolta á þýsku. Það undarlegasta var að hann gerði þetta með stakri prýði þrátt fyrir reynsluleysi í hvoru tveggja. Þið ættuð ekki að láta koma ykkur á óvart ef maðurinn verður með sítt að aftan og í Lederhosen þegar við snúum aftur til Íslands.

Mér finnst ekki síður merkilegt að klukkan er bara tæplega sex og við erum glaðvöknuð. Kannski er það vegna ískursins í U1 sem skröltir framhjá á nokkurra mínútna fresti. Ætli margir taki lest klukkan sex?

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.