Sviti og sekkjapípur

24 June 2004 | Andrés

Rúna hefur bent mér á að kannski þurfi ég að endurskoða hvernig ég forgangsraða farangri. Við lögðum nefnilega leið okkar í apótek áðan til að kaupa svitasprey, enda hafði ég ekki séð ástæðu til að flytja svoleiðis milli landa. Sumum þykir hins vegar kúnstugt að ég hafi á sama tíma séð mér fært að pakka sekkjapípu í koffortið.

Í apótekinu fengum við auk þess að kynnast þýskri þjónustulund uppá sitt besta. Komum að kassanum, lögðum vörurnar á bandið aftan við vörur næsta manns á undan. Allt mjög eðlilegt. Nema hvað, afgreiðslukonan er að fara í pásu. Hún bendir okkur ekkert pent á að færa okkur á næsta kassa heldur skellir stærðarinnar þili fyrir framan vörurnar okkar þar sem stendur að kassinn sé lokaður.

4 Comments

  1. harpa said on 24 Jun 2004 at 23:09:

    sko.. þegar það er kominn kaffitími.. þá er bara kominn kaffitími. Þjóðverjar kunna sennilega manna best á klukku!

  2. Kári P. Ólafsson said on 25 Jun 2004 at 09:20:

    Ég hefði skellt á ykkur líka.
    Sama hvort það væri komið kaffi eða ekki.
    K.

  3. Bjarni said on 25 Jun 2004 at 11:35:

    Sá sem á sekkjapípur saknar einskis …

  4. Auðun Georg Ólafsson said on 25 Jun 2004 at 16:17:

    Þýskir þjóðverjar eru klikk.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.