Tvö eitt

24 June 2004 | Andrés

SO-36 er gamla póstnúmerið í hverfinu sem við búum í þessa dagana. Sama nafn ber klúbburinn sem Iggy Pop og aðrar pönkstjörnur spiluðu gjarnan á í gamla daga. Í gær fylltu klúbbstjórar SO-36 dansgólfið af bekkjum og hengdu breiðtjald við enda þess. Klukkutíma fyrir leik Þýskalands og Tékklands var staðurinn fullur. Það var dáldið skemmtilegt að sitja umkringdur hundruðum manna sem var hreint ekki sama hvernig leikurinn færi, þótt fæstir hafi búist við þýskum sigri.

Fólk fór samt ekkert að skæla heldur skálaði bara fyrir tapinu eftir leikinn.

1 Comment

  1. mabbz said on 24 Jun 2004 at 10:03:

    já fjandanz kludur..hefdi sennilega sómad mig vel þarna a klubbnum med þessum sem var ekki sama hvernig leikurinn færi. Lízt vel á hvurzu dugleg þið eruð að skrifa í síðuna ;-)

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.