Hverfið okkar

26 June 2004 | Andrés

Fyrsta mánuðinn búum við í herbergi á fimmtu hæð við Lausitzer Platz í Kreuzberg-hverfinu. Meginþorri nágranna okkar virðist eiga rætur að rekja til Tyrklands. Í staðinn fyrir að hanga á krám hanga tyrkneskir karlmenn á spilaklúbbum. Þeir líta alveg eins út og krár, nema það er kveikt á öllum ljósum, engin tónlist spiluð og konum er meinaður aðgangur. Svo sitja fjórir karlar við hvert borð og spila á spil.

Ætli rommí sé ekki þjóðaríþrótt Tyrklands.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.