Parmesan og Pixies
27 June 2004 | Rúna
Við vorum að enda við að elda kvöldmat handa sambýlingum okkar, parmesan-kjúkling með hrísgrjónum, brauði og salati. Þeim virtist líka maturinn vel, enda allt saman hraustir drengir nýkomnir úr blaki, brimbrettaæfingu, veggjaklifri eða guð má vita hverju. Þessir strákar eru afskaplega fínir og boðnir og búnir til að vera okkur innan handar ef við þurfum.
Dagurinn er búinn að vera sérlega skemmtilegur. Við kíktum á íbúð í Prenzlauer Berg og sátum á kaffihúsi með Craig, kunningja okkar, og Hanni, kærustunni hans. Craig er búinn að redda okkur fari á Pixies-tónleikana sem verða eftir aðeins tvo daga. Ekki dónalegt það.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Gott að það er gaman hjá ykkur :)