Darwinsk íbúðarleit
28 June 2004 | Andrés
Þýskir leigusalar sýna íbúðir sínar gjarnan á sunnudagseftirmiðdögum. Í gær skoðuðum við eina í bleiku húsi í vinsælu hverfi. Ásamt okkur var mætt á annan tug vongóðra. Svo mætti leigusalinn á tilskildum tíma og við löbbuðum í einfaldri röð á eftir honum, skoðuðum íbúðina og fylltum út eyðublað. Heppna parið á von á símhringingu um miðja vikuna.
Þeir sem til þekkja segja að öruggasta leiðin til að fá íbúð sé að skoða þá sunnudaga sem rignir (færri um hituna) eða í þau sjaldgæfu skipti sem sýningin fer fram á virkum degi. Við þær aðstæður búum við Íslendingarnir að darwinskum yfirburðum. Við erum þaulvön rigningunni og höfum ekkert meira að gera á virkum dögum en um helgar.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
er einmitt farin að kvíða fyrir íbúðaleit…ertu að meina að ég verði að vona að það verði bara rigning í september í hinni frjálzu borg?? Damn!
Það er nú alveg í lagi þó rigni stöku dag, ef það liðkar fyrir fasteignaviðskiptum.
thad er búid ad rigna her daglega i heilan mánud. Thid vaerud ansi oheppin ef kaemi gott sumarvedur núna ;)