Pixies
30 June 2004 | Andrés
Til að komast á tónleikana í gær þurftum við að ganga gegnum þykkan skóg, en komumst að lokum. Upp úr skóginum reis stærðarinnar hringleikahús, Kindl-Bühne:

Gangan langa sneiddi framan af prógrammi Franz Ferdinand, en við náðum okkur fljótt á þeirri sorg því restin hjá þeim var alveg ljómandi. Ash fylgdi þeim með ekki síðra prógrammi.
Allt í kringum okkur gengu sölumenn um — sumir með körfu af Brätzel, aðrir með kassa fullan af sígarettum og, flottastir af öllum, gaurarnir með bjórdælubakpokann. Enda er staðurinn á vegum Berliner-Kindl, aðalbjórframleiðanda borgarinnar.
Pixies voru svo frábærir. Renndu gegnum best offið sitt og létu svo klappa sig upp í tvígang.

Frank Black er samt dáldið miðaldra og feitur. Byrjaði tónleikana á að girða sig og klóra sér í pungnum. Það náði samt að vekja fagnaðarlæti!
Við vorum alveg í skýjunum þegar okkur var skutlað heim af Derick og Jennifer, hinu huggulega fólkinu á myndinni:

Í bílnum var líka sómapilturinn Craig sem smyglaði myndavél inná tónleikana í sígarettupakka og á því heiðurinn af þessum myndum.
4 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
i was curious about your email :) keinbetreff, you think that sounds so nice? i am glad you have fun here in berlin and you enjoyed the shows in wuhlheide and kreuzberg of course, you should go to SO36 if they have a nice show. its a famous place from back then. if i try really hard i even understand some of the text, it has some similarities to swedish, but not that many :)
so will you report about saturdays show, too?
ótrúlega huggó allt saman :)
oooh, ekki fóruð þið á pixies tónleika?!?! Ég er græn af öfund!!!!
en fyndið. Gaman að sjá hvað heimurinn er lítill. Bið að heilsa Derek og Jennifer ef þið hittist aftur, og Isabellu dóttur þeirra. P.S. Derek kemur stundum fram sem rappari undir nafninu LadyBoy. Það er mjög fyndið. Hafið það sem allra best. Kveðjur frá Önnu og Alex.