Archives for July 2004
Þýskir karlmenn
31 July 2004 | molar | No Comments
Í Berlín eru heilu hjarðirnar af mönnum sem líta út alveg einsog Sverrir Stormsker.
Ikea — enn einusinni
30 July 2004 | molar | No Comments
Nú förum við ekki oftar í Ikea. Fjórum sinnum hlýtur að nægja. Til tilbreytingar prófuðum við annað útibú þetta skiptið. Í öllum meginatriðum eru búðirnar eins, helst munar um útsýnið af bílastæði þeirrar síðari. Þar gefur nefnilega að líta stærðarinnar kjarnorkuver. Vorum við að leggja okkur í geislunarhættu fyrir sænskt gestarúm? Á rúmið eftir að [...]
Fötin skapa manninn
28 July 2004 | molar | 2 Comments
Andrés furðar sig á því að við séum búin að vera í Berlín í fimm vikur og ég sé enn að klæða mig í föt sem ég hef ekki verið í áður hér. Ég held að hann sé líka hissa á að við séum búin að vera saman í tíu mánuði og hann sé enn [...]
Prédikarinn
27 July 2004 | molar | 2 Comments
Í hverfinu okkar búa nokkrir kynlegir kvistir (enga brandara um að við Rúna séum þeirra á meðal). Einn sá litríkasti — bókstaflega — kallar sig „The Preacher of Prenzlauer Berg“. Hann er Breti um sextugt með grátt, sítt hár og háan hatt. Utanum hattinn hefur hann vafið fullt af klútum, sjölum og snærisbútum í hinum [...]
Evu Solan…
24 July 2004 | molar | No Comments
…eda ad minnsta kosti ohuggulega utgafu af henni sa eg a knaepu. Fattadi tha hvad eg by vid mikid sjonvarpsleysi.
Muslimar i lestum
22 July 2004 | molar | 1 Comment
Og enn af samgöngukerfi Berlinarborgar. Eg sa konu med höfudslaedu i lest. Svosem ekki i frasögur faerandi eitt og ser, fullt af muslimum i borginni. En mer, saklausa sveitastraknum, thotti konan osköp hnipin. Hun horfdi i gaupnir ser og helt höndum saman einsog i baen. Allar sögurnar um kugudu konurnar i Afganistan birtust mer fyrir [...]
Slagur í sporvagni
20 July 2004 | molar | 1 Comment
Samgöngukerfi Berlínar krefst þess að fólk kaupi miða og hafi á sér alltaf þegar það situr í lestum, sporvögnum eða strætó. Af og til birtast dularbúnir miðaverðir til að tékka á þessu og sekta þá sem ekki hafa gilda farseðla. Við lentum í svona tékki og tókum fljótlega eftir flóttalegum manni feta sig í átt [...]
Allt ad koma
19 July 2004 | molar | 1 Comment
Okkur gengur bara mjög vel ad gera íbúdina heimilislega. Eiginlega vantar okkur núna bara sófa og stofubord og kannski smá hirslur. Andrés er búinn ad sýna meistaratakta vid ad setja saman ikea-húsgögnin, og gekk reyndar fram af skrúfjárninu ádur en hann haetti. Fyrsta gestinn fengum vid svo í gaerkvöldi í mat. Tad var hann Craig, [...]
Sumarid
19 July 2004 | molar | No Comments
Sumarid er loksins komid til Berlinar. Thessa dagana skridur hitinn gjarnan upp ad 30 gradunum thegar birtir yfir. Vid hofum thessvegna litid hangid i tolvum (og lika vegna thess ad vid hofum ekkert internet heima lengur), en thvi meira rolt um floamarkadi ad leita ad smotterii i innbuid.
Flutt!
15 July 2004 | molar | 1 Comment
Mercedes Benz leigubíllinn silaðist eftir götum Berlínar með meira en fullfermi. „Er þetta allt sem þið þurfið í eldhúsið,“ spurði bílstjórinn eftir að hafa bisað við að koma vörum af troðfullri innkaupakerru og tveimur brettum inní bíl. Og svo þurfti náttúrulega pláss fyrir báða farþegana líka. „Nei, gott betur kallinn. Þetta á að fylla heila [...]
Þjóðarskömm
13 July 2004 | molar | No Comments
Eitt blaðið fjallaði um sumarveðrið í dag, eða öllu heldur hversu ósumarlegt veðrið hefur verið þetta árið. Í pistlinum segja þeir að þetta sé nánast sjálfskaparvíti — fólk hafi kvartað svo mikið yfir hitunum í fyrra að nú séu guðirnir að hefna sín. Einsog refsivöndur guðs sé þá fyrst reiddur til höggs gegn Þjóðverjum þegar [...]
Rúna setur skriffinnskuna i uppnám
12 July 2004 | molar | 2 Comments
Það er viss ástæða fyrir því að skráningin, sem talað var um hér að neðan, tók hálftíma en ekki tíu mínútur. Indæla konan fann mig nefnilega í tölvunni sinni, þar sem stóð að ég væri til heimilis í Maybachufer 47. Ég hafði þá aldrei skráð mig úr því húsi, eins og maður á víst bráðnauðsynlega [...]
Read ‘Rúna setur skriffinnskuna i uppnám’
Duncker nálgast
12 July 2004 | molar | 1 Comment
Frá og með deginum í dag erum við skráð til heimilis að Dunckerstraße 12, þótt lyklana fáum við ekki fyrr en á miðvikudaginn. Þessi skráning fór fram á bæjarskrifstofunni okkar og fékk kalt vatn til að renna milli skinns og hörunds annars okkar. Afgreiðsla fór fram í ellefu herbergjum við langan gang en það tólfta [...]
Hún á afmæli í dag..
10 July 2004 | molar | No Comments
..hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Gígja, hún á afmæli í dag. Þá er mín góða vinkona Gígja búin að lifa í heilan aldarfjórðung. Ég veit ekki nákvæmlega hvar í heiminum hún heldur upp á afmælið sitt, en ég er viss um að þar er fjör. Gígja er nefnilega ein af þessum [...]
KiBa & BiBa
10 July 2004 | molar | No Comments
Síðustu daga hef ég eignast nýjan uppáhaldsdrykk, sem gengur undir nafninu KiBa hér í Berlín. Í hann er einfaldlega blandað saman kirsuberjasafa og bananasafa, og útkoman er æðisleg. Ég hefði kannski ekki haldið að bananasafi væri lystugur eða svalandi, en annað hefur komið á daginn. Ástríða mín fyrir drykk þessum er orðin þvílík að ég [...]
Appelsínugulir dagar
9 July 2004 | molar | No Comments
Nú er komið á hreint að við fáum lyklana af Dunckerstrasse 12 afhenta á miðvikudagsmorgun. Svo virðist sem konan sem leigði á undan okkur þurfi eina og hálfa viku til að koma einum pappakassa úr íbúðinni, en það var allt og sumt sem í henni var þegar við komum að skoða. Við tökum þessu með [...]
LadyBoy
9 July 2004 | molar | 2,119 Comments
Í gærkvöldi sáum við hvítan mann rappa á klúbbnum Bastard. Með í för voru Hanni og Craig, sem eru vinir listamannsins. Öll skemmtum við okkur ljómandi vel, allavega miðað við þennan mann: Hann er lifandi (eða dauð) sönnun þess hve berlínski bjórinn er varasamur… Craig tók myndirnar.
Starbucks
8 July 2004 | molar | 2 Comments
Hér í Berlín er dáldið af almenningssalernum, City-Toilette, sem standa manni opin gegn hálfrar evru greiðslu. Fyrir þessa upphæð fær maður afnot af sótthreinsuðum geimaldarklefa í tuttugu mínútur. Undir búkhljóðum manns spilar klefinn svo notalega tónlist. Á Starbucks er sama tónlist spiluð í borðsalnum.
Tabú
7 July 2004 | molar | No Comments
Þýsk kvikmyndahús sýna þessa dagana myndina Der Wixxer, sem er ágætis aulahúmorsmynd. Myndin gerist á Englandi (þótt allir tali lýtalausa þýsku) og helsti illvirkinn er Sir John. Kallinn sá er, einsog hefðarköllum sæmir, með böttler í kastalanum sínum. Böttlerinn heitir Alfons Hatler og lítur svona út: Hatler talar með austurrískum hreim, segir “Heil” nokkrum sinnum [...]
Dunckerstraße tólf
6 July 2004 | molar | No Comments
Eftir einn og hálfan klukkutíma hjá leigusalanum, níu síðna leigusamning og jafnmargar fylgisíður skrifuðum við undir. Á morgun eða hinn fáum við lykla að Dunckerstraße 12, 1. SF, 2. OG. Þetta fína bleika hús stendur við lítinn almenningsgarð, Helmholtzplatz, sem er umkringdur kaffihúsum og smærri búðum. Við annan enda Platz-ins er markaður á laugardögum. Allt [...]