KiBa & BiBa
10 July 2004 | Rúna
Síðustu daga hef ég eignast nýjan uppáhaldsdrykk, sem gengur undir nafninu KiBa hér í Berlín. Í hann er einfaldlega blandað saman kirsuberjasafa og bananasafa, og útkoman er æðisleg. Ég hefði kannski ekki haldið að bananasafi væri lystugur eða svalandi, en annað hefur komið á daginn.
Ástríða mín fyrir drykk þessum er orðin þvílík að ég er farin að panta mér hann í staðinn fyrir bjór. Andrési finnst frekar fúlt að sötra sinn bjór einsamall meðan ég er á KiBa flippi svo ég ákvað áðan að panta mér Berliner Weizen, sem er Hefe hveitibjór með bananasafa út í. Hann kom skemmtilega á óvart. Nú erum við bæði sátt.
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.