Duncker nálgast
12 July 2004 | Andrés
Frá og með deginum í dag erum við skráð til heimilis að Dunckerstraße 12, þótt lyklana fáum við ekki fyrr en á miðvikudaginn. Þessi skráning fór fram á bæjarskrifstofunni okkar og fékk kalt vatn til að renna milli skinns og hörunds annars okkar. Afgreiðsla fór fram í ellefu herbergjum við langan gang en það tólfta var stór salur. Fyrst hélt ég að salurinn væri fyrirlestrasalur, þangað til mér var bent á að þarna sætu þeir 100 borgarar sem væru á undan okkur í röðínni og fylgdust með hækkandi tölum á ljósaskilti.
En, viti menn! Ég sá konu gefast upp á biðinni. Hún erfði okkur að miðanum sínum, sem færði okkur fram fyrir á að giska 50 borgara í röðinni. Svo afgreiddi okkur indælis kona, þótt hún hafi verið með illa aflitað hár sem bar þess vitni að hún hafi staðið í skaðræðishliðarvindi fyrr um daginn.
Skráningin var í það heila afgreidd á hálftíma.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
[...] 8211; að við séum löglega skráð í landinu (eyðublað frá löggunni sem við fengum hérna) og vottorð um skólavist. Þótt þetta virki stundum einsog stofnunin [...]