Rúna setur skriffinnskuna i uppnám

12 July 2004 | Rúna

Það er viss ástæða fyrir því að skráningin, sem talað var um hér að neðan, tók hálftíma en ekki tíu mínútur. Indæla konan fann mig nefnilega í tölvunni sinni, þar sem stóð að ég væri til heimilis í Maybachufer 47. Ég hafði þá aldrei skráð mig úr því húsi, eins og maður á víst bráðnauðsynlega að gera.

Fyrir þremur árum, um svipað leyti og ég skráði mig til heimilis í Maybachufer 47, fékk ég leyfi hjá Útlendingaeftirlitinu til að vera í Þýskalandi í eitt ár. Ég bjó því í rauninni löglega í Maybachufer í eitt ár og ólöglega í tvö ár. Ég vona að Útlendingaeftirlitið hafi ekkert mikið verið að leita að mér þessi tvö ár.

2 Comments

  1. ragnhildur said on 13 Jul 2004 at 04:43:

    úff, er ekki interpol komin í málið?! :)

  2. Dóra said on 15 Jul 2004 at 17:27:

    Þú segir nokkuð, ætli ég sé ekki kolólöglegur innflytjandi á Spáni núna :S Maður bara fer heim og spáir ekkert í það meira.
    Gaman að lesa hvað á daga ykkar drífur sérstaklega þegar svona góður penni á í hlut.
    Rigningarkveðja, Dóra

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.