Flutt!

15 July 2004 | Andrés

Mercedes Benz leigubíllinn silaðist eftir götum Berlínar með meira en fullfermi. „Er þetta allt sem þið þurfið í eldhúsið,“ spurði bílstjórinn eftir að hafa bisað við að koma vörum af troðfullri innkaupakerru og tveimur brettum inní bíl. Og svo þurfti náttúrulega pláss fyrir báða farþegana líka. „Nei, gott betur kallinn. Þetta á að fylla heila íbúð,“ var svarið.

Bílstjórinn dæsti og þerraði á sér ennið.

„Verður samt ekki voðalega erfitt fyrir ykkur að koma þessu saman, eða kunnið þið sænsku?“

Jú, við fengum íbúðina afhenta í gær, rukum í IKEA og keyptum allar helstu mubblur. Vöknuðum í morgun á Dunckerstrasse og fórum í raftækjaverslun til að dekka græjurnar. Erum nú að ganga frá bráðabirgðaherberginu okkar og verðum alflutt í kvöld. Núna er hver dagur öðrum betri!

1 Comment

  1. Magga said on 16 Jul 2004 at 13:07:

    Til hamingju með íbúðina og flutningana! það er sem sagt svona alveg bráðum hægt að fara að spá í að kíkja kannski í heimsókn til ykkar ;) Hafið það bara rosa gott!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.