Slagur í sporvagni
20 July 2004 | Andrés
Samgöngukerfi Berlínar krefst þess að fólk kaupi miða og hafi á sér alltaf þegar það situr í lestum, sporvögnum eða strætó. Af og til birtast dularbúnir miðaverðir til að tékka á þessu og sekta þá sem ekki hafa gilda farseðla. Við lentum í svona tékki og tókum fljótlega eftir flóttalegum manni feta sig í átt að dyrunum. Annar miðavörðurinn, kona á miðjum aldri, tók líka eftir krimmanum og fór að krefja hann miðans. Maðurinn stökk útúr á næstu stoppustöð og konan á eftir. Þegar vagninn lagði af stað sáum við að þau voru farin að hnakkrífast á gangstéttinni og kallinn farinn að stjaka við konunni. Rétt áður en þau hurfu okkur úr augsýn kýldi hann hana í andlitið.
Þá þustu að hraustir, velviljaðir vegfarendur og björguðu konunni úr krísunni. Það er víst bannað að lemja konur í Berlín.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
úff, það kemur sér nú ekki vel fyrir wife-beaterinn Andrés :)