Prédikarinn

27 July 2004 | Andrés

Í hverfinu okkar búa nokkrir kynlegir kvistir (enga brandara um að við Rúna séum þeirra á meðal). Einn sá litríkasti — bókstaflega — kallar sig „The Preacher of Prenzlauer Berg“. Hann er Breti um sextugt með grátt, sítt hár og háan hatt. Utanum hattinn hefur hann vafið fullt af klútum, sjölum og snærisbútum í hinum ýmsu litum.

Í þrígang hefur hann komið til okkar þar sem við sitjum í sólinni og beðið um smápening — aldrei meira en hálfa evru. Í staðinn býðst hann til að syngja Bítlalag á 20 sekúndum. Ágóðinn segir hann að renni til þess annars vegar að endurreisa góðmennsku og fegurð í Prenzlauer Berg og hins vegar að kaupa póstkort handa kærustunni sinni.

Eins skondið og það er, þá er hann sennilega sá nágranna okkar sem við höfum oftast hitt.

2 Comments

  1. kein betreff » molar » Nýtt atriði said on 5 Aug 2004 at 14:47:

    [...] [...]

  2. guggulíus said on 30 Jul 2004 at 17:17:

    halló berlínarfólk…bítlalag á 20 sekúndum er nú alls ekki amalegt…ég fór og hitti nokkra vel valda heimspekinga um daginn..gerður guidaði okkur um reykjavíkurborg í rigningunni..fróðleikurinn svoleiðis valt uppúr henni…en eitthvað fannst mér nú vanta..enginn andrés var óvenjulegt..hafið það gott mín kæru..hlakka til að kíkja í heimsókn..

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.