Fötin skapa manninn

28 July 2004 | Rúna

Andrés furðar sig á því að við séum búin að vera í Berlín í fimm vikur og ég sé enn að klæða mig í föt sem ég hef ekki verið í áður hér. Ég held að hann sé líka hissa á að við séum búin að vera saman í tíu mánuði og hann sé enn að sjá boli í fyrsta sinn. Ætli hann skilji ekki núna hvers vegna taskan mín, sem hann var svo góður að burðast með upp fimm hæðir þegar við fluttum, hafi tekið svona hressilega í.

Eins mikið og mér leiðist þessi „karlar eru frá Mars — konur eru frá Venus“ pæling, held ég að þetta atriði sé einna helst það sem skilur að karla og konur. Allt í lagi, ég tók með mér þrisvar sinnum fleiri skópör en hann, en annars gæti ég ekki notað helminginn af fötunum mínum. Maður notar ekki strigaskó við pils, ekki frekar en maður notar sandala með hæl við hermannabuxur (þótt dæmin í Berlín sýni reyndar fram á annað).

Talað um föt, í dag var þvottadagur hjá okkur Andrési. Þessir dagar eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Þá örkum við í þvottahúsið í grenndinni hvort með sinn Ikea-pokann og skellum í vélarnar. Svo fáum við okkur gjarnan einn kaldan á nálægu kaffihúsi meðan vélarnar gera sitt. Ég hef alltaf haft þvottavél á heimili mínu og einu reynsluna af svona þvottahúsum hef ég úr sjónvarpinu. Þess vegna finnst mér þessar ferðir afskaplega spennandi og rómantískar.

Ennþá að minnsta kosti.

2 Comments

  1. Armchair said on 28 Jun 2009 at 13:10:

    Wt1R1v Armchair sightseeing, with links to many famous places and landmarks

  2. Armchair said on 29 Jun 2009 at 21:29:

    VRqQTT Armchair sightseeing, with links to many famous places and landmarks

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.