Archives for August 2004

Handan góðs og ills

31 August 2004 | molar | 2 Comments

Í hverfinu okkar er fullt af flottum, nýmóðins kaffihúsum. Þessvegna vakti nokkra athygli knæpan með nafninu „Jenseits von G und B“, sem er einhver þýskasta knæpa sem sést hefur. (Nafnið vakti líka furðu — ekki daglegt brauð að sjá stað nefndan í höfuðið á bók eftir Nietzsche.) Vertinn er allt í öllu — eini starfsmaðurinn. [...]

Read ‘Handan góðs og ills’

Austur-latínó

30 August 2004 | molar | 1 Comment

Mikið þótti okkur skrýtið þegar við rákumst á kúbanska tónlistarstöð á útvarpinu. Svo áttuðum við okkur loksins á ástæðunni. Þegar Austur-Þýskaland var og hét átti það í miklum vináttusamskiptum við Kúbu hans Kastrós. Allir stærri atburðir (þar sem tækifæri gafst til myndatöku) urðu að státa af einum dökkum, kommúnískum kúbverja. Þetta fólk festi hér rætur [...]

Read ‘Austur-latínó’

Flugmiðar til einskis

29 August 2004 | molar | 1 Comment

Bókunarkerfi Flugleiða er þannig útbúið að ekki borgar sig að kaupa miða bara aðra leiðina. Þess vegna áttum við miða heim til Íslands, sem aldrei stóð til að nota. Flugið sem sá miði gilti í fór í loftið í dag, kortér yfir tvö. Í vélinni voru tvö auð sæti merkt okkur. Núna erum við virkilega [...]

Read ‘Flugmiðar til einskis’

Þá er það ákveðið!

27 August 2004 | molar | 2 Comments

Í haust munu rassar okkar Andrésar verma tvö sæti í Freie Universität Berlin. DSH-þýskuprófið tökum við þann 24. september og ef það gengur að óskum setjumst við á skólabekk um miðjan október. Þetta er í annað skiptið á lífsleiðinni sem ég stunda nám við FU-Berlin, en þar lærði ég sem Erasmus-stúdent fyrir nokkrum árum. Þetta [...]

Read ‘Þá er það ákveðið!’

Áframhaldandi gestagangur

26 August 2004 | molar | No Comments

Eins og áður kom fram leggja gestir gjarnan leið sína í Dunckerstrasse 12. Þessa dagana er gesturinn Ari Karlsson, laganemi með meiru og viðskiptastjóri í Háaleitisútibúi Íslandsbanka. Þar með hlýtur hann þann heiður að vera sú manneskja sem hefur oftast komið að heimsækja mig til Berlínar. Það á vel við því Ari er afskaplega mikill [...]

Read ‘Áframhaldandi gestagangur’

Sjúkrahúsið i Svartaskógi

23 August 2004 | molar | 491 Comments

Íslenskir aðdáendur þáttanna víðfrægu ættu að kunna að meta fréttina sem ég rakst á. Til stendur að gera kvikmynd um félagana í Svartaskógi!

Read ‘Sjúkrahúsið i Svartaskógi’

Hrun tískumúrsins

22 August 2004 | molar | No Comments

Í Austur-Þýskalandi voru nokkrar lúxusverslanir sem einungis var hægt að versla í ef maður átti vestur-þýsk mörk. Þeir sem áttu ættingja vestanmegin urðu þannig að ákveðinni elítu, þar sem þeir fengu peninga senda að handan. Í hverjum bekk í barnaskóla voru kannski tveir nemendur sem áttu föt úr lúxusbúð og voru fyrir vikið svölu krakkarnir [...]

Read ‘Hrun tískumúrsins’

Þýska þjóðleikhúsið

21 August 2004 | molar | No Comments

Volksbühne minnir á Þjóðleikhúsið í Reykjavík, nema það er allt stærra í sniðum. Í staðinn fyrir einn Þjóðleikhúskjallara eru í dag tveir skemmtistaðir í Volksbühne — Grüner Salon og Roter Salon. Þetta eru húsi sem Hitler lét reisa makleg málagjöld — hann sem var svo óskaplega á móti öllu sem honum þótti vera ólifnaður. Í [...]

Read ‘Þýska þjóðleikhúsið’

Húsið skreytt

19 August 2004 | molar | 1 Comment

Fyrst heimilið vantar ekkert af stóru mubblunum lengur er kominn tími til að skreyta það. Fyrsta myndin til að prýða veggi Dunkerstrasse 12 er þessi ljómandi fína mynd af Ringo Starr sem kúreka. Væntanlega er þetta plakat úr spagettívestranum Blindman, sem Ringo lék mexíkóskan glæpamann í. Nú vantar okkur bara plötuna með soundtrackinu, en titillagið [...]

Read ‘Húsið skreytt’

Grænt, grænt, grænt..

18 August 2004 | molar | 2 Comments

Þann mánuð sem við höfum búið í okkar ástkæru íbúð hefur stofu-/svefn-/gesta-/vinnuherbergið okkar staðið heldur tómt. Það var ekki fyrr en í lok síðustu viku að við gátum loksins bætt stofuheitinu við það. Ástæðan var sú að við rákumst á þetta fína sófasett, sem kostaði ekki nema 135 evrur með flutningskostnaði. Sófasettið er frá fyrri [...]

Read ‘Grænt, grænt, grænt..’

Zugelassen worden

18 August 2004 | molar | 3 Comments

Þýsku háskólarnir starfa á öðrum tímaramma en þeir íslensku. Í dag fékk ég í annað sinn bréf þar sem mér var tilkynnt að umsókn mín um nám í Berlín hafi verið samþykkt. Nú er ekkert að gera annað en að velja hvort bréfið ráði — hvort Humboldt eða Freie fái að kenna mér þýsku. Báðar [...]

Read ‘Zugelassen worden’

Sendiráð og tímamót

17 August 2004 | molar | 3 Comments

Í gær héldum við amma uppá sameiginlegt afmæli okkar með því að draga maka okkar í heimsókn í íslenska sendiráðið hér í Berlín. Við fengum fínan rúnt um húsið og enduðum á að fá kaffi og kökur í fundasal sendiráðsins. Að þessu loknu fórum við á veitingastað við Under den Linden. Þar héldum við Rúna [...]

Read ‘Sendiráð og tímamót’

Messugjörð

15 August 2004 | molar | 2 Comments

Sömu helgi og páfinn vísitérar Lourdes fórum við í messu í Berlín. Í fylgd ömmu og afa mættum við í Zionskirch, sem er rétt við hótelið þeirra. Þessi þýska messa var í nokkrum atriðum frábrugðin þeim sem ég hef sótt heima á Íslandi. Kirkjan var í mikilli niðurníðslu. Málningin flögnuð af öllum veggjum, nema þar [...]

Read ‘Messugjörð’

Hann á afmæli…

13 August 2004 | molar | No Comments

Í dag á Berlínarmúrinn heitinn afmæli. 13. ágúst 1961 fóru hermenn að reisa skýrasta tákn kalda stríðsins. Á 43 ára afmæli múrsins fórum við í rútu um miðborg Berlínar, meðal annars yfir Checkpoint Charlie sem var landamærastöð bandamanna. Með í för voru Karin amma og Hannes afi, sem áttu oft erindi til austurhluta borgarinnar fyrir [...]

Read ‘Hann á afmæli…’

Kamikaze

13 August 2004 | molar | 1 Comment

Á kokkteilseðli eins hverfisbarsins er síða helguð drykkjum sem vertinn kallar „Krazy cocktails“. Það sem þeir hafa umfram hefðbundna kokkteila er gífurlegt magn áfengis. Á miðri síðunni situr drykkur sem ber nafn japönsku sjálfsmorðsflugmannanna, en hann ku innihalda: Absinth, viskí, Cointreau, gin, romm, tekíla, vodka og Grenadine Átta staup af áfengi í stóru glasi er [...]

Read ‘Kamikaze’

Austur mætir vestri

11 August 2004 | molar | 3 Comments

Í haust verða fimmtán ár liðin síðan Þýskaland var sameinað eftir 40 ára stjórn kommúnista austanmegin. Heima á Íslandi heyrði ég aldrei annað en að sameiningin hafi gengið snuðrulaust fyrir sig og þjóðin stæði í dag heil. Þessu fer fjarri í hjörtum heimamanna. Fólk skilgreinir sig enn sem Austur- eða Vestur-Þjóðverja — notar meira að [...]

Read ‘Austur mætir vestri’

Stungin!

9 August 2004 | molar | No Comments

Ég hef oft lýst því yfir hversu örugg borg Berlín er. Við getum rölt um stræti borgarinnar á öllum tíma sólarhringsins án þess að hafa áhyggjur af brjáluðum dópistum með hnífa, eins og stundum vill gerast í Reykjavík. Um helgina komst ég að því að ég er alls ekki jafn óhult og ég hélt. En [...]

Read ‘Stungin!’

Bier-lín

9 August 2004 | molar | No Comments

Ó, nei! Þið getið ekki farið þangað! Svona lagað er bara fyrir hallærislegustu Austur-Þjóðverja. Slík voru viðbrögð þýskrar vinkonu okkar þegar við tilkynntum henni að við ætluðum að taka þátt í bjórhátíðinni. Okkur þótti skrítið að hún væri haldin svona fordómum gagnvart hátíðargestum, en mikið hafði hún rétt fyrir sér! Á tveggja kílómetra langri Karl [...]

Read ‘Bier-lín’

Mogginn í Berlín

5 August 2004 | molar | 1 Comment

Er ekki skondið hversu ólíkur fréttaflutningur er milli landa? Um helgina var Ólympíuleikvangurinn í Berlín endurvígður eftir gagngerar endurbætur. Hátíðin var mikið auglýst, enda stigu Nena og Pink á stokk auk glæsilegrar flugeldasýningar. Hvergi var minnst á undir hvaða kringumstæðum leikvangurinn var í upphafi reistur. Mér brá því ansi mikið í brún þegar ég opnaði [...]

Read ‘Mogginn í Berlín’

Bjór, bjór, bjór

5 August 2004 | molar | No Comments

Síðustu helgi drukku Íslendingar sig fulla. Næstu helgi ætla Berlínarbúar að gera slíkt hið sama. Þá verður haldin í áttunda sinn bjórhátíð hér í borg sem aðstandendur segja vera þá stærstu í heimi. 240 bjórgerðir úr 80 löndum munu kynna 1700 bjórtegundir á þessari þriggja daga hátíð. Ætli maður þekki ekki einhvern sem hefði gaman [...]

Read ‘Bjór, bjór, bjór’