Sonnenbad
1 August 2004 | Andrés
Þegar hitinn skríður uppí þrjátíu gráður á fátt betur við en að leggjast á manngerða strönd við stöðuvatn í miðri Austur-Berlín. Það fær mann líka til að hugsa um hversu brenglaða mynd maður hefur af DDR-inu. Í mínum huga var Austur-Þýskaland alltaf fullt af mönnum í ljósum rykfrökkum og það var alltaf dimmt yfir. Jafnvel rigning. En auðvitað var sama veður þá og nú og auðvitað sleiktu heimamenn sólina þá einsog nú.
Grýlan sem Austur-Þýskaland var er samt ótrúlega lífsseig…
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Sem sagt hið margumtalaða og fræga Orankesee?