Verslunarmannahelgin

1 August 2004 | Rúna

Við fórum í grillveislu í gær. Það var enginn annar en formaður Íslendingafélagsins í Berlín sem stóð fyrir veislunni og kveikti upp í grilli á svölunum sínum í Lichtenberg. Eins og vera ber var bjór hafður um hönd og við grilluðum dýrlegan kjúkling. Þegar gestirnir voru komnir vel við skál var íslenskri tónlist snarað á fóninn svo þetta var eins og í sannkölluðu íslensku partíi.

Við fengum því okkar skerf af verslunarmannahelginni þrátt fyrir að vera 2390 kílómetra frá Vestmannaeyjum.

1 Comment

  1. Magga said on 2 Aug 2004 at 18:39:

    Gott að þið getið skemmt ykkur ;)
    Rúna: hefurðu ekki fengið emailið frá mér um “litla” ferðalagið mitt?
    Mig langar alveg rosalega mikið að heyra frá þér sem allra allra fyrst.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.