Hann á afmæli…

13 August 2004 | Andrés

Peter Fechter náði að laumast yfir múrinn árið 1962, en flæktist í gaddavír vestanmegin. Enginn úr liði bandamanna þorði að fara útá dauðasvæðið til að hjálpa honum. Í marga klukkutíma hlýddu nærstaddir á dauðastríð 18 ára unglingsins meðan honum blæddi út.
Í dag á Berlínarmúrinn heitinn afmæli. 13. ágúst 1961 fóru hermenn að reisa skýrasta tákn kalda stríðsins.

Á 43 ára afmæli múrsins fórum við í rútu um miðborg Berlínar, meðal annars yfir Checkpoint Charlie sem var landamærastöð bandamanna. Með í för voru Karin amma og Hannes afi, sem áttu oft erindi til austurhluta borgarinnar fyrir þrjátíu árum, en gátu stöðu sinnar vegna flakkað milli borgarhluta. Maður skynjar virkilega á þeim hvað borgin hefur lifað tímana tvenna.

Myndin að ofan er af Peter Fechter sem náði að laumast yfir múrinn árið 1962, en flæktist í gaddavír vestanmegin. Enginn úr liði bandamanna þorði að fara útá dauðasvæðið til að hjálpa honum. Í marga klukkutíma hlýddu nærstaddir á dauðastríð 18 ára unglingsins meðan honum blæddi út.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.