Kamikaze

13 August 2004 | Andrés

Á kokkteilseðli eins hverfisbarsins er síða helguð drykkjum sem vertinn kallar „Krazy cocktails“. Það sem þeir hafa umfram hefðbundna kokkteila er gífurlegt magn áfengis. Á miðri síðunni situr drykkur sem ber nafn japönsku sjálfsmorðsflugmannanna, en hann ku innihalda:
Absinth, viskí, Cointreau, gin, romm, tekíla, vodka og Grenadine
Átta staup af áfengi í stóru glasi er eitthvað sem maður sér ekki á hverjum degi. Kannski þori ég einhverntíman að prófa þetta.

(Fyrir áhugasama, þá er öllu nema Absinth blandað saman með klökum. Þá er Absinthið, helst 70% að styrkleika, látið varlega útí, þannig að það fljóti efst. Að lokum er borinn eldur að drykknum áður en hann er reiddur fram.)

1 Comment

  1. Svenni said on 13 Aug 2004 at 16:38:

    Er thessi drykkur ekki medal thess sem madur verdur ad smakka i Berlin, eftir rett taepan manud :)

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.