Messugjörð

15 August 2004 | Andrés

Sömu helgi og páfinn vísitérar Lourdes fórum við í messu í Berlín. Í fylgd ömmu og afa mættum við í Zionskirch, sem er rétt við hótelið þeirra. Þessi þýska messa var í nokkrum atriðum frábrugðin þeim sem ég hef sótt heima á Íslandi.

  • Kirkjan var í mikilli niðurníðslu. Málningin flögnuð af öllum veggjum, nema þar sem var ekki búið að sparsla yfir múrverkið.
  • Auk sóknarprestsins var gestaprestur, en hann tók að sér predikunina.
  • Predikunin var töluvert leiðinlegri en gengur og gerist heima. Frekar en að leggja út af einhverjum dægurmálum þuldi sérann ræðu sem hefði betur sómt sér á biblíunámskeiði. Afi dottaði.
  • Samskotabaukur var látinn ganga. Þessa vikuna var annað hvort verið að safna fyrir viðgerðum á þakinu eða klósetinu sem stendur til að smíða í kirkjunni.
  • Annars var bara skemmtilegt.

    2 Comments

    1. Nornin said on 16 Aug 2004 at 15:14:

      elsku Andrés, nú er kominn 16.ágúst og þá er við hæfi að óska þér til hamingju með daginn! Ég vona að hann verði þér ánægjulegur :)
      Knús og kossar,Alla

    2. Ágústa págústa said on 16 Aug 2004 at 15:33:

      Til hamingju með daginn elsku drengurinn :)

    Log in to post a comment.

    You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.