Sendiráð og tímamót
17 August 2004 | Andrés
Í gær héldum við amma uppá sameiginlegt afmæli okkar með því að draga maka okkar í heimsókn í íslenska sendiráðið hér í Berlín. Við fengum fínan rúnt um húsið og enduðum á að fá kaffi og kökur í fundasal sendiráðsins.
Að þessu loknu fórum við á veitingastað við Under den Linden. Þar héldum við Rúna í fyrsta sinn upp á afmælið mitt saman en amma og afi í fimmtugastaogeitthvað sinn upp á hennar. Gaman að sjá svona gömul og kát hjón.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Til hamingju með afmælið þann 16 kæri Andrés og góðar kveðjur til ykkar beggja.
Til hamingju með afmælið gamli!!!!!!!!!!!
Hérna meginn er maður aftur ungur og áhyggjulaus, 24 ára og á allt lífið framundan.
Þú færð afmælisgjöfina seinna. Hún er ógó flott.
Og hæ líka Rúna! Vona að ykkur gangi vel þarna í útlandinu. mar veit aldrei með þessa útlendinga, þeir eru stórvarasamir.
Þetta seinasta var írónía.
Stundum er ég hrædd um að fólk fatti ekki húmorinn minn.
Það er hins vegar jafnfyndið og þá er grínið orðið tvöfalt.
Jamm og já (búin að vera of lengi úti í sólinni)