Grænt, grænt, grænt..
18 August 2004 | Rúna
Þann mánuð sem við höfum búið í okkar ástkæru íbúð hefur stofu-/svefn-/gesta-/vinnuherbergið okkar staðið heldur tómt. Það var ekki fyrr en í lok síðustu viku að við gátum loksins bætt stofuheitinu við það. Ástæðan var sú að við rákumst á þetta fína sófasett, sem kostaði ekki nema 135 evrur með flutningskostnaði. Sófasettið er frá fyrri hluta sjöunda áratugarins, ljósgrænt með svörtum leðurbríkum. Sófinn er þriggja sæta og hægt að fella bakið niður svo úr verði rúm. Herlegheitunum fylgja svo tveir stólar og allt settið er á hjólum. Það er því græn hamingja sem umlykur Dunckerstrasse 12 þessa dagana.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
en sætt!
Á ekki að skella inn mynd af herlegheitunum?