Zugelassen worden
18 August 2004 | Andrés
Þýsku háskólarnir starfa á öðrum tímaramma en þeir íslensku. Í dag fékk ég í annað sinn bréf þar sem mér var tilkynnt að umsókn mín um nám í Berlín hafi verið samþykkt. Nú er ekkert að gera annað en að velja hvort bréfið ráði — hvort Humboldt eða Freie fái að kenna mér þýsku.
Báðar námsleiðirnar voru Numerus Clausus — aðeins 30 pláss í boði á hvorum stað. Þar af eru tvö pláss nú frátekin fyrir íslensk skötuhjú.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Innilega til hamingju með inngönguna í þýskunámið!
Erum komin heim heil á höldnu. Takk fyrir síðast og dásamlega samveru í Berlín. Innilegar hamingjuóskir með inngöngusamþykki í skólana. Vitum að þið veljið Humbolt. Kærar kveðjur.Afi, amma og Karen P.
til lukku!