Hrun tískumúrsins

22 August 2004 | Andrés

Í Austur-Þýskalandi voru nokkrar lúxusverslanir sem einungis var hægt að versla í ef maður átti vestur-þýsk mörk. Þeir sem áttu ættingja vestanmegin urðu þannig að ákveðinni elítu, þar sem þeir fengu peninga senda að handan. Í hverjum bekk í barnaskóla voru kannski tveir nemendur sem áttu föt úr lúxusbúð og voru fyrir vikið svölu krakkarnir í skólanum.

Hrun múrsins hafði hræðilegar afleiðingar fyrir þessa krakka. Þegar þeir fóru vestur yfir landamærin hættu snjóþvegnu gallabuxurnar að vera það flottasta sem sást. Vestanmegin þóttu flottustu krakkarnir að austan bara púkalegir.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.