Áframhaldandi gestagangur

26 August 2004 | Rúna

Eins og áður kom fram leggja gestir gjarnan leið sína í Dunckerstrasse 12. Þessa dagana er gesturinn Ari Karlsson, laganemi með meiru og viðskiptastjóri í Háaleitisútibúi Íslandsbanka. Þar með hlýtur hann þann heiður að vera sú manneskja sem hefur oftast komið að heimsækja mig til Berlínar. Það á vel við því Ari er afskaplega mikill heimsborgari og sífellt að gerast fjölmenningarlegri.

Ari kveður Þýskaland á sunnudaginn. Sama dag kemur Magga vinkona mín, sem er á ferðalagi um Evrópu, og Manne, vinur hennar frá Svíþjóð. Þau verða hjá okkur í þrjá daga.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.