Þá er það ákveðið!
27 August 2004 | Rúna
Í haust munu rassar okkar Andrésar verma tvö sæti í Freie Universität Berlin. DSH-þýskuprófið tökum við þann 24. september og ef það gengur að óskum setjumst við á skólabekk um miðjan október.
Þetta er í annað skiptið á lífsleiðinni sem ég stunda nám við FU-Berlin, en þar lærði ég sem Erasmus-stúdent fyrir nokkrum árum. Þetta er fínn skóli, og einn helsti plúsinn er gríðarstór „mensa“ þar sem hægt er að fá þríréttaða máltíð fyrir varla neitt.
DSH-prófið og námið sjálft leggjast afar vel í okkur, enda höfum við verið nokkuð dugleg að stúdera þýska tungu síðan við komum okkur fyrir í Dunckerstrasse. Hér er stóra gula Langenscheid orðabókin lesin spjaldanna á milli og gluggað í „Die Grundlagen der deutschen Grammatik“ öllum til ánægju og yndisauka.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Af því ég þykist viss um að þið hugsið einatt heim, í öllu þýskunáminu, datt mér í hug að senda ykkur samgermannskan húsgang sem ég lærði fyrir margt löngu og gæti yljað íslenskum farfuglum:
Hörst du mal
Mein Schnati
Lieber, kluger Freund
Glaubst du nicht.
Gangi ukkur vel með prófið …
das Ich dein Ring
wie ein Soldat tragen werde.
Hæ!
Loksins tókst mér að linka á síðuna ykkar. Þá get ég skoðað á hverjum degi, en ekki bara þegar ég man eftir því. Mér finnst svo gaman að vita hvað er að gerast hjá ykkur. Get ekki beðið eftir að komast út, en mér telst svo til að nú séu 13 dagar í brottför hjá okkur. Vonandi er það ekki óhappa. Hitti Davíð í gær, hann var í skreppu á íslandi og hann sagði mér sona smá praktíska hluti, svo nú er ég enn bjartsýnni á að allt sé svo létt og auðvelt og skemmtilegt. VEEEEEEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIIIII!