Archives for August 2004
Nýtt atriði
5 August 2004 | molar | No Comments
Prédikarinn er búinn að æfa nýtt atriði. Hann syngur blöndu af „Love me do“ og “When I’m sixty-four“ á meðan hann labbar Moon-Walk afturábak og dillar sér. Endar síðan á að benda viðstöddum á að hann sé breskur séntilmaður. Enda er hann alltaf í póléruðum lakkskóm, sama hversu illa hann er til reika.
Gestagangur
4 August 2004 | molar | No Comments
Fyrsti naeturgesturinn er buinn ad vigja gestarumid okkar. Thad var hun Karen fraenka sem er haegt og rolega ad faera sig fra Halle til Reykjavikur med vidkomu i Berlin og Kaupmannahöfn. I gaer ferjudum vid lika heimshornaflakkarana ömmu og afa milli flugvalla Berlinar, en thau verda i Baden am Wien naestu vikuna. Svo faum vid [...]
Verslunarmannahelgin
1 August 2004 | molar | 1 Comment
Við fórum í grillveislu í gær. Það var enginn annar en formaður Íslendingafélagsins í Berlín sem stóð fyrir veislunni og kveikti upp í grilli á svölunum sínum í Lichtenberg. Eins og vera ber var bjór hafður um hönd og við grilluðum dýrlegan kjúkling. Þegar gestirnir voru komnir vel við skál var íslenskri tónlist snarað á [...]
Sonnenbad
1 August 2004 | molar | 1 Comment
Þegar hitinn skríður uppí þrjátíu gráður á fátt betur við en að leggjast á manngerða strönd við stöðuvatn í miðri Austur-Berlín. Það fær mann líka til að hugsa um hversu brenglaða mynd maður hefur af DDR-inu. Í mínum huga var Austur-Þýskaland alltaf fullt af mönnum í ljósum rykfrökkum og það var alltaf dimmt yfir. Jafnvel [...]