Archives for September 2004
Búdapest
30 September 2004 | molar | 3 Comments
Ferðin til Búdapest er á enda og við erum komin aftur heim. Hún tókst í alla staði frábærlega. Ég var alveg steinhissa á sunnudaginn þegar ég frétti að morguninn eftir myndum við stíga upp í flugvél. Kannski var það sérstaklega þess vegna sem mér fannst svona gaman, af því að þetta var svona óvænt og […]
Lygar og leynimakk
26 September 2004 | molar | 2 Comments
Á morgun verður rétt ár liðið síðan við Rúna kynntumst á djamminu í Reykjavík. Síðan höfum við verið óaðskiljanleg. Þótt öll góð sambönd eigi að byggjast á heiðarleika og hreinskilni, hef ég neyðst til að ljúga að Rúnu síðustu dagana og halda vissum hlutum leyndum fyrir henni. Nú er rétt að ég geri hreint fyrir […]
Leyndarmálið
25 September 2004 | molar | No Comments
Andrés á sér leyndarmál. Það er svo mikið og merkilegt að hann er daginn út og inn með leyndardómsfullt glott á andlitinu. Þegar við förum á netið verð ég að lofa að kíkja ekki. Þegar við fáum sms hrekkur hann við. Í gær keypti hann bók í tengslum við leyndarmálið og laumaðist til að borga […]
Aflokið
24 September 2004 | molar | 3 Comments
Átta tíma próf í fjórum hlutum með klukkutíma matarhléi í hádeginu. Tvö hundruð manns, mest fólk með einhvert slavneskt mál að móðurmáli, í fyrirlestrarsal. Við tvö og þriðji Íslendingurinn, Guðný eðlisfræðiskvísa, sveitt útí horni að fá vöðvabólgu af skriftunum.
Þetta gekk samt allt að óskum. Að minnsta kosti höldum við það. Þýska skilvirknin er samt ekki […]
DSH
23 September 2004 | molar | 2 Comments
Á morgun munum við standa frammi fyrir síðasta hjallanum á leið okkar í nám. Þá sitjum við milli 9 og 17 í Freie Universität í allsherjar þýskuprófi — Deutsche Sprachprüfung für den Hochschulzugang. Auðvitað eigum við eftir að fljúga í gegn, en það er dáldið taugatrekkjandi að hugsa til þess að möguleikinn til að stunda […]
Nú verða bræðurnir stoltir
22 September 2004 | molar | 1 Comment
Við vorum að bóka miða á heimaleik hjá fótboltaliði borgarinnar — Herthu Berlin. Þann 16. október setjumst við á bekki Ólympíuleikvangsins og sjáum þá taka Bayer Leverkusen í bakaríið.
Maður þarf nú að reyna að laga sig að siðum heimamanna, ekki satt?
Read ‘Nú verða bræðurnir stoltir’
Waschemaschinedienst
22 September 2004 | molar | 1 Comment
Á póstkassanum okkar er, líkt og á flestum kössum í húsinu, lítill miði sem afþakkar auglýsingapóst fyrir okkar hönd. Þessi beiðni er virt af flestum ruslpóstberum — fyrir utan þá sem bera út eina ákveðna tegund auglýsinga. Minnst vikulega berst okkur lítill miði þar sem kynnt er ótrúlega snögg, góð og ódýr þvottavélaviðgerðaþjónusta.
Svo áberandi auglýsingar […]
Fimm vísbendingar…
21 September 2004 | molar | 1 Comment
… um að tekið sé að hausta í Berlín:
Laufin falla af trjánum eins og þau hafi aldrei gert neitt annað
Hurðin á videoleigunni okkar er aldrei þessu vant lokuð
Vingjarnlega konan á kassanum í Spar titrar af kulda
Á leiðinni á næsta kaffihús þurfum við að hlaupa í roki og rigningu (sem er reyndar ansi notalegt)
Ég er farin […]
Frú Fót
20 September 2004 | molar | No Comments
Yfir hamborgaranum mínum hékk breiðtjald með beinni útsendingu frá U21 landsleik í fótbolta. Að leiknum loknum komu almennar fótboltafréttir — undir stjórn kvenmanns! Mér þótti kvenmaður lítið erindi eiga í svoleiðis þáttagerð, þangað til ég sá hvað hún hét.
Þarna var nefnilega mætt Frú Catarine Fuß, væntanlega af ætt þeirra sem fundu upp fótboltann (Fußball á […]
Hitler í Hollywood
19 September 2004 | molar | No Comments
Der Untergang er ein nýjasta þýska bíómyndin, og sennilega sú umdeildasta. Hún fjallar um síðustu daga Hitlers og þykir mála hann í fullbjörtu ljósi. Til að æfa okkur í þýskunni fórum við í bíó í gær.
Í sem stystu máli mæli ég með því að sem flestir sjái þessa mynd. Einsog einhver gyðingur sagði í útvarpsspjallþætti […]
Vitabar fundinn!
18 September 2004 | molar | No Comments
Af þeim hlutum sem ég hef helst saknað eftir flutning ber þrennt hæst — íslenska kranavatnið, Vitabar og Nonnabitar — hvert við mismunandi tækifæri. Vatnsins sakna ég orðið lítið. Bæði venst berlínska kranavatnið ágætlega og við höfum uppgötvað ljómandi gott tyrkneskt flöskuvatn sem gefur Gvendarbrunnum ekkert eftir.
Í gær fundum við svo loksins stað þar sem […]
Skrifrædd arfleið
17 September 2004 | molar | No Comments
Mér þykir nokkuð augljóst af hverju við þurfum að leggja sömu skjöl fram aftur og aftur og aftur. Þjóðverjar hafa frá síðari heimsstyrjöldinni vanið sig á að kveikja reglulega í öllum skjalaskápum, til að koma í veg fyrir sakfellingu.
Næstum…
17 September 2004 | molar | No Comments
Nú fer að líða að því að við sjáum fyrir endann á skriffinnskunni, sem hefur séð okkur fyrir nægum verkefnum síðustu mánuði. Í gær fórum við nefnilega á skráningarskrifstofu Hins frjálsa háskóla og gengum frá innritun okkar.
Hér vil ég benda fólki á að rugla alls ekki saman umsóknarferlinu og skráningarferlinu, jafnvel þótt við höfum […]
Systkin á faraldsfæti
16 September 2004 | molar | 2 Comments
Svenni bróðir hefur kvatt okkur skötuhjúin og lærdómur tekinn við. Við áttum afskaplega skemmtilega daga með Svenna. Fyrsta kvöldið hans drifum við hann í partí hjá Hanni, vinkonu okkar, sem var vel heppnað í alla staði. Eftir það litum við inn á tvo staði við Rosa-Luxemburg-Platz og dönsuðum smá.
Hinum þremur dögunum eyddum við aðallega í […]
Fyrstu myndir
15 September 2004 | molar | No Comments
Nú geta lesendur skyggnst inn í líf okkar á myndasíðu keinbetreff.
Besti leigusalinn
15 September 2004 | molar | No Comments
Fyrir fimm dögum réðust einhverjir ribbaldar á húsið okkar og krotuðu út veggi gangsins sem liggur að portinu okkar. Húsið, með sínum fimmtíu íbúðum, er allt á vegum sama leigusala sem okkur finnst núna sá langbesti. Í morgun voru nefnilega mættir tveir menn í bláum smekkbuxum sem máluðu veggi gangsins í snarheitum til að við […]
Íslenskt, já takk?
13 September 2004 | molar | No Comments
Matarinnkaup gerum við orðið vikulega, þarsem við fylgjum óskaplega fínu matarplani. Þá þurfum við ekki að dröslast eins oft út í stóru, leiðinlegu búðina.
Í gærkvöldi brá okkur í brún þegar við rifum frosna laxinn útúr skápnum og fórum að matbúa hann. Í einu horni pakkninganna stóð að fiskurinn væri úr smiðju Icelandic Frozen Seafood. Maður […]
Pönnukökuveisla
10 September 2004 | molar | No Comments
Í gærkvöldi buðum við nokkrum hraustum Íslendingum í pönnukökur í Dunckerstrasse. Andrés hafði flutt með sér pönnuna sína og spaðann frá Grettisgötunni svo hann var vel í stakk búinn til að steikja nokkrar ljúffengar. „Nokkrar“ er reyndar ekki nógu gott orð fyrir tíu sentimetra staflann sem hafði myndast þegar deigið kláraðist.
Pönnsurnar runnu ljúflega niður í […]
Skrifræðið
7 September 2004 | molar | 4 Comments
Flestir hljóta að kannast við sögusagnir þess efnis að Þjóðverjar séu miklir aðdáendur skriffinnsku. Þær eru hver annarri sannari — allt sem við þurfum að gera hangir saman í flóknum vef. Þar að auki þurfum við að leita á náðir nokkurra íslenskra stofnana, sem oft eru litlu skárri. Tvö dæmi:
Skólinn krefst þess að við sýnum […]
Heimsveldið keinbetreff
6 September 2004 | molar | No Comments
Um helgina lá heimasíðan keinbetreff.net niðri vegna bilunar í tölvubúnaði í Michigan. Mikið teygir veldið sig víða!
Annað til marks um veldið: Ef maður gúgglar Austur-Þýskaland erum við hjúin fjórðu í röðinni. Og þar er á heimsvísu, sjáiði til!