Næstum…

17 September 2004 | Rúna

Nú fer að líða að því að við sjáum fyrir endann á skriffinnskunni, sem hefur séð okkur fyrir nægum verkefnum síðustu mánuði. Í gær fórum við nefnilega á skráningarskrifstofu Hins frjálsa háskóla og gengum frá innritun okkar.

Hér vil ég benda fólki á að rugla alls ekki saman umsóknarferlinu og skráningarferlinu, jafnvel þótt við höfum þurft að sýna nákvæmlega sömu skjölin í bæði skiptin. Svo virðist nefnilega sem ekkert samband sé haft milli skrifstofanna, þannig að við þurftum að leggja allt fram á nýjan leik.

Okkur, eða a.m.k. mér, leist ekki á blikuna þegar við mættum í skólann klukkutíma fyrir opnun skrifstofunnar, og röðin í biðnúmerin var þegar afar fjölmenn. En við létum okkur ekki leiðast þessar tvær klukkustundir sem við þurftum að bíða, og nú eru formlegu skólamálin loksins komin úr okkar höndum.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.