Vitabar fundinn!

18 September 2004 | Andrés

Af þeim hlutum sem ég hef helst saknað eftir flutning ber þrennt hæst — íslenska kranavatnið, Vitabar og Nonnabitar — hvert við mismunandi tækifæri. Vatnsins sakna ég orðið lítið. Bæði venst berlínska kranavatnið ágætlega og við höfum uppgötvað ljómandi gott tyrkneskt flöskuvatn sem gefur Gvendarbrunnum ekkert eftir.

Í gær fundum við svo loksins stað þar sem sleipir, gómsætir hamborgarar í stíl við Vitabarsborgarana eru á boðstólnum. Ekki nóg með að borgararnir séu lostæti, heldur er staðurinn ská á móti heimili okkar — á að giska 20 metra labb á milli húsa.

Núna vantar bara Nonna til að hægt sé að líta á Berlín sem raunhæfan valkost á móti Reykjavík.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.