Hitler í Hollywood

19 September 2004 | Andrés


Der Untergang
er ein nýjasta þýska bíómyndin, og sennilega sú umdeildasta. Hún fjallar um síðustu daga Hitlers og þykir mála hann í fullbjörtu ljósi. Til að æfa okkur í þýskunni fórum við í bíó í gær.

Í sem stystu máli mæli ég með því að sem flestir sjái þessa mynd. Einsog einhver gyðingur sagði í útvarpsspjallþætti um daginn, þá gerir það fólki gott að átta sig á því að Hitler og félagar voru ekki skrímsli að upplagi, heldur venjulegt fólk sem hagaði sér einsog skrímsli.

Svo var dáldið skrítið að sjá hvað borgin okkar hefur verið óskaplega illa leikin eftir stríðið — fyrir litlum sextíu árum!

(Myndin var framleidd í Þýskalandi, ekki Hollywood. Þarna fékk stuðlun í titli forgang yfir sannleikann.)

Leave a Reply

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.