Waschemaschinedienst
22 September 2004 | Andrés
Á póstkassanum okkar er, líkt og á flestum kössum í húsinu, lítill miði sem afþakkar auglýsingapóst fyrir okkar hönd. Þessi beiðni er virt af flestum ruslpóstberum — fyrir utan þá sem bera út eina ákveðna tegund auglýsinga. Minnst vikulega berst okkur lítill miði þar sem kynnt er ótrúlega snögg, góð og ódýr þvottavélaviðgerðaþjónusta.
Svo áberandi auglýsingar þykja mér benda til þess að Þjóðverjar þjáist öðrum þjóðum fremur af ótta við að lenda í þvottaþröng. Er það versta sem maður getur gert fólki hér um slóðir að neyða það til að ganga í sömu nærbrók tvo daga í röð?
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Ég barasta skil ekki hvernig það má vera að það þurfi alla þessa þvottavélaviðgerðaauglýsingableðla. Í landinu sem færir okkur hinar traustu og óbilandi Siemens og AEG!