Aflokið

24 September 2004 | Andrés

Átta tíma próf í fjórum hlutum með klukkutíma matarhléi í hádeginu. Tvö hundruð manns, mest fólk með einhvert slavneskt mál að móðurmáli, í fyrirlestrarsal. Við tvö og þriðji Íslendingurinn, Guðný eðlisfræðiskvísa, sveitt útí horni að fá vöðvabólgu af skriftunum.

Þetta gekk samt allt að óskum. Að minnsta kosti höldum við það. Þýska skilvirknin er samt ekki meiri en svo, að útkoman liggur ekki fyrir fyrr en 12. október. 200 manns bíða milli vonar og ótta í þrjár vikur meðan fólkið silast við að fara yfir prófið.

Fyndnast er sennilega að skólinn sjálfur krefst þess að við látum vita hvaða kúrsa við tökum góðri viku áður en við vitum hvort við megum stunda nám þarna…

3 Comments

  1. Sigga said on 25 Sep 2004 at 02:53:

    Próf með matarhléi athyglisvert.

    Skilvirkni kerfisins er líka athyglisverð…

  2. keinbetreff » Blog Archive » Endurtektarprófið said on 5 Mar 2005 at 15:52:

    […] um fyrirlestrarsal að leysa annað þýskuprófið mitt í háskólanum, hið fyrra var í haust. Það var hvort tveggja í senn — lokapróf í […]

  3. keinbetreff » Blog Archive » Endurtekt said on 5 Mar 2005 at 15:53:

    […] um fyrirlestrarsal að leysa annað þýskuprófið mitt í háskólanum, hið fyrra var í haust. Það var hvort tveggja í senn — lokapróf í […]

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.