Leyndarmálið

25 September 2004 | Rúna

Andrés á sér leyndarmál. Það er svo mikið og merkilegt að hann er daginn út og inn með leyndardómsfullt glott á andlitinu. Þegar við förum á netið verð ég að lofa að kíkja ekki. Þegar við fáum sms hrekkur hann við. Í gær keypti hann bók í tengslum við leyndarmálið og laumaðist til að borga þegar ég sá ekki til. Þegar við komum heim pakkaði hann kápu bókarinnar í dagblað svo ég sæi ekki um hvað bókin fjallaði þegar við lágum uppi í rúmi og lásum.

Á morgun ætlar Andrés að ljóstra upp leyndarmálinu. Hann er þess fullviss að ég verði yfir mig hrifin. Ég get varla beðið.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.