Lygar og leynimakk
26 September 2004 | Andrés
Á morgun verður rétt ár liðið síðan við Rúna kynntumst á djamminu í Reykjavík. Síðan höfum við verið óaðskiljanleg. Þótt öll góð sambönd eigi að byggjast á heiðarleika og hreinskilni, hef ég neyðst til að ljúga að Rúnu síðustu dagana og halda vissum hlutum leyndum fyrir henni. Nú er rétt að ég geri hreint fyrir mínum dyrum — játi henni syndir mínar stafrænt.
Lygin er sú, að Rúna heldur mig hafa fundið óskaplega notalegan veitingastað til að borða afmælismatinn á. Sannleikurinn (sem tengist leynimakkinu órofaböndum) er að ég hef engan ákveðinn stað í huga.
Leynimakkið er öllu umfangsmeira. Í síðustu viku fann ég nefnilega ódýra og fína utanlandsferð. Á morgun, til að fagna fyrsta árinu okkar saman, förum við Rúna í þriggja nátta ferð til Búdapest.
2 Comments
Leave a Reply
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
ó mæ god!! En geðveikislega rómantísk og æðisleg hugmynd!! Ég hélt að svona gerðist bara í svona bandarískum rómó gamanmyndum!
Til hamingju turtildúfur og góða ferð :)