Búdapest
30 September 2004 | Rúna
Ferðin til Búdapest er á enda og við erum komin aftur heim. Hún tókst í alla staði frábærlega. Ég var alveg steinhissa á sunnudaginn þegar ég frétti að morguninn eftir myndum við stíga upp í flugvél. Kannski var það sérstaklega þess vegna sem mér fannst svona gaman, af því að þetta var svona óvænt og dásamleg gjöf.
Við gistum í íbúð á vegum farfuglaheimilis á besta stað í bænum. Íbúðin var mjög heimilisleg og líklega býr einhver þarna meðan ekki eru gestir. A.m.k. var hvítlaukur í ísskápnum. Mér fannst fínt að vera í svona íbúðarhúsi en ekki einhverju túristahóteli, stemningin var ennþá meiri.
Maturinn í Búdapest er alveg svakalega góður. Við fengum okkur ýmsa þjóðlega rétti og brögðuðust þeir allir vel. Ég held að hápunktur ferðarinnar hafi verið þegar við sátum á 105 ára ungverskum veitingastað við bakka Dónár, borðuðum góðan mat og hlustuðum á fiðlu- og harmonikkuleikara flytja gullkorn úr tónlistarsögu landsins.
Eftir fjögurra daga ferðalag erum við snúin aftur til annarrar fallegrar borgar, Berlínar. Eins skemmtileg og ferðin var er líka gott að vera komin heim. Ég er viss um að næstu daga á ungversk fiðlutónlist og matarilmurinn eftir að fylgja mér í huganum og minna mig á þessa frábæru daga.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
mig dreymdi einmitt í fyrri nótt að ég væri á leiðinni til búdapest…síðan vaknaði ég og fattaði að ég var ekki að fara neitt, og að það var rigning og rok úti, og að ég væri kvefuð og með hausverk……….helv, djö, andsk # / ‘> :/ Gott að þið komust heil heim :)
1-0 Andrés!
Vonandi náiði ykkur af Búdapestinni sem fyrst. Skelfilegur sjúkdómur.