Archives for October 2004

Freie 0 – Rúna 2

31 October 2004 | molar | 2 Comments

Öðru sinni hefur Rúna sigrast á Golíatinum sem Freie Universiät er. Í þetta skiptið liggja úreltir kennsluhættir eins prófessorsins í valnum. Þannig er mál með vexti, að ein risaeðlan sem starfar við deildina okkar heldur vikulega 90 mínútna fyrirlestra fyrir 200 manns, en hafði ekki fyrir því að bjóða uppá neitt haldbært efni með þeim [...]

Read ‘Freie 0 – Rúna 2’

Halló Vín

29 October 2004 | molar | 4 Comments

Þjóðverjar skipa sér í hóp þjóða þar sem í tísku er að vera á móti Ameríku. Hér er almenningur reiður í garð þess „Imperialismus“ sem Bandaríkin þykja sýna í garð annarra þjóða, sérstaklega eftir innrásina í Írak. Þess vegna skýtur dáldið skökku við að sama fólkið og hallmælir alltumvefnandi faðmi frændans handan við hafið er [...]

Read ‘Halló Vín’

Markmið Þýskalandsdvalar minnar

28 October 2004 | molar | 3 Comments

Í Kennaraháskóla Íslands læra nemendur öðru fremur að setja markmið. Það er ekki jafn einfalt og það hljómar, því markmið eru ekki bara markmið. Markmið geta verið yfirmarkmið, einstaklingsmarkmið, þrepamarkmið og svo lengi mætti telja. Sem útskrifaður kennari er ég því ekki í vandræðum með að setja mér markmið með dvölinni hérna í Þýskalandi. Aðalmarkmiðin [...]

Read ‘Markmið Þýskalandsdvalar minnar’

Fílólógíunördar

27 October 2004 | molar | 1 Comment

Við Rúna stundum nám við Deutsche Philologie, sé einhver ekki með það á hreinu. Þar er fjallað um málvísindi og bókmenntir frá örófi alda, en þetta misserið sitjum við mest inngangskúrsa um efnið. Einn slíkur er inngangur að þýskum bókmenntum síðari alda (17. til 20. öld). Kennarinn þar hlýtur að vera einhver mesti afturhaldsseggur sem [...]

Read ‘Fílólógíunördar’

Misjafnn bjórsiður

26 October 2004 | molar | 3 Comments

Maður finnur dáldið hvaða hverfi borgarinnar maður er staddur í eftir því hvernig bjórúrvalið er á börunum. Á „svölu“ svæðunum getur maður keypt margar tegundir af bjór, en í úthverfum sjaldan fleiri en eina. Þó eru úthverfabarirnir með lúmskt mikið úrval — þótt öðruvísi sé. Gott dæmi um slíkan stað er Hannelores Tagesbar (að bar [...]

Read ‘Misjafnn bjórsiður’

Búðingur dauðans

25 October 2004 | molar | 2 Comments

Mötuneyti í háskólanum hér á landi eru kölluð „mensa“, sem er latína fyrir „borð“. Mér finnst voða gaman að fara í mensuna í skólanum okkar. Þar er svo mikið úrval og fyrir kemur að maturinn er alls ekki svo slæmur. Hægt er að velja milli kjöt-, fisk- og grænmetisrétta og meira að segja eru í [...]

Read ‘Búðingur dauðans’

Meint hitabylgja

24 October 2004 | molar | No Comments

Íslenskum lesendum okkar hefur eftirvill borist sú frétt til eyrna að í Þýskalandi sé hitabylgja. Til að ná móralnum heima á klaka upp er rétt að benda á að vissulega eru 20 gráður flesta daga, en sökum loftraka virkar það miklu, miklu kaldara. Kannski ekki eins kalt og gráðurnar tvær í Reykjavík…

Read ‘Meint hitabylgja’

Misjafnar þvottavenjur

24 October 2004 | molar | No Comments

Rétt vikulega gerum við okkur ferð í þvottahús hverfisins svo við eigum eitthvað hreint daginn eftir. Sagan segir að í þvottahúsum geti maður séð hið furðulegasta fólk og við erum ekki frá því að sagan sé sönn. Sáum síðast miðaldra mann, ekki sérstaklega vel hirtan. Hann var með þvott í fjórum vélum. Þegar vélarnar kláruðu [...]

Read ‘Misjafnar þvottavenjur’

Annar sigur!

21 October 2004 | molar | 6 Comments

Á meðan Rúna sigrar Freie Universität sigra ég keppni um kynþokkafyllsta mann Íslands á síðunni hennar Ragnhildar. Enda ekki nema von.

Read ‘Annar sigur!’

Sigur!

21 October 2004 | molar | 3 Comments

Loksins þegar við héldum að öll okkar mál hjá háskólanum væru á hreinu hrundi stundataflan okkar eins og spilaborg um daginn. Ein kennslukonan tilkynnti mér að við mættum ekki taka stóran hluta kúrsanna sem við höfðum ætlað okkur. Í stuttu máli sagt eru þessir kúrsar víst ætlaðir erlendum Magister-nemum (en ekki BA-nemum) en við höfðum [...]

Read ‘Sigur!’

Smábæjarfílingur

19 October 2004 | molar | No Comments

Í síðustu viku fórum við að upplifa Berlín á svipaðan hátt og Reykjavík — sem lítið pláss. Fimm daga í röð lentum við nefnilega í því að rekast á fólk sem við þekkjum á hinum ýmsu stöðum borgarinnar, allt að tvisvar á dag. Þótt Berlín telji nærri 3,4 milljónir íbúa en Reykjavík talsvert færri leiddi [...]

Read ‘Smábæjarfílingur’

Pálmafárið

19 October 2004 | molar | 2 Comments

Berlín er svo frábærlega öðruvísi. Allt annað en Reykjavík, þar sem allt er eins. Svona hljómar hefðbundin úttekt nýfluttra Íslendinga á veitingahúsa-/kaffihúsa-/skemmtanalífi stórborgarinnar. Ef íslenskir lesendur heyra sagt frá á þennan hátt, skulu þeir gjöra svo vel og segja viðkomandi að draga hausinn útúr rassgatinu á sér og sjá borgina einsog hún er. Þessi rökvilla [...]

Read ‘Pálmafárið’

Nýtt símanúmer!

19 October 2004 | molar | No Comments

Nú er ég orðin sjálfstæð kona og komin með eigið gsm-símanúmer. Þeir sem vilja slá á þráðinn eða senda mér línu noti framvegis númerið 0049 176 2425 5893.

Read ‘Nýtt símanúmer!’

Seint koma sumir.

18 October 2004 | molar | No Comments

Ein af fáum hefðum í sambandi okkar Rúnu er sú, að gjafir frá henni berast mér alltof seint. Þannig fékk ég jólagjöfina í febrúarlok (hún týndist í pósti) og var að fá afmælisgjöfina mína í dag (pöntuð á netinu í júli, kom núna). Tafirnar gleymast þó fljótt því gjafirnar eru svo fínar. Í afmælisgjöf fékk [...]

Read ‘Seint koma sumir.’

Heilbrigð sál í hraustum…

17 October 2004 | molar | 1 Comment

Freie Universität býður, líkt og Háskóli Íslands, nemendum sínum uppá ýmiskonar íþróttaæfingar til að skerpa holdið samhliða andanum. Í 160 síðna bæklingnum sem útlistar hvaða námskeið eru í boði kennir margra grasa. Nokkur eróbikknámskeið, körfubolti og tæ-kvondó eru meðal þess sem maður hefði búist við að byðist. Inná milli eru hinsvegar áhugaverð námskeið sem kemur [...]

Read ‘Heilbrigð sál í hraustum…’

Þrjú-eitt!

16 October 2004 | molar | No Comments

Í dag þyrptust tugir þúsunda Berlínarbúa á Ólympíuleikvanginn, þar sem Hertha BSC keppti við Bayer Leverkusen í fótbolta. Í þessum skara vorum við líka, Andrés með blá- og hvítröndóttan Herthutrefil og ég með húfu í stíl. Við keyptum okkur flíkurnar á leiðinni til að það færi nú ekki milli mála hvaða lið við styddum. Sætin [...]

Read ‘Þrjú-eitt!’

Slagorð aldarinnar

15 October 2004 | molar | 1 Comment

Ég var að taka til í blaðastafla heima og rakst á EasyJetmiðana frá því við skruppum til Búdapest. Ég hlæ alltaf dáldið þegar ég rek augun í slagorðið sem þeir hafa valið að setja á þetta eina bréfsnifsi sem maður fær frá þeim. Þar stendur, rétt til að manni finnist maður velkominn um borð, „If [...]

Read ‘Slagorð aldarinnar’

Leikur að læra

13 October 2004 | molar | 1 Comment

Þessa dagana standa nemendur í deildinni okkar, þýskum málvísindum og bókmenntum, fyrir svokallaðri kynningarviku. Nýnemar mæta og kynnast skólakerfinu, náminu og hver öðrum. Í gær hlýddum við aðallega á ræður um hið nýinnleidda Bachelor-kerfi. Í dag komu til okkar fulltrúar úr stúdentapólitíkinni og svo fórum við í skemmtilegan göngutúr um háskólasvæðið þar sem fjallað var [...]

Read ‘Leikur að læra’

Þýskan mössuð

12 October 2004 | molar | 9 Comments

Þegar ég gekk í Fjölbrautaskóla Suðurlands lærði ég alla þá þýsku sem ég hef lært. Árin 1994-6 tók ég fjóra áfanga og gekk bara sæmilega. Núna, átta árum eftir að ég hætti að læra þýsku hefur þýskur háskóli tekið við mér á sama grundvelli og hvaða þýska nema sem er. Útkoma DSH-prófsins sýndi þeim að [...]

Read ‘Þýskan mössuð’

Manudagur til maedu

11 October 2004 | molar | 6 Comments

Vid gerdum okkur ferd til vesturhluta borgarinnar adan. Aetludum ad kaupa ulpu fyrir veturinn sem bratt fer i hönd. Byrjudum a ad setjast nidur a KFC og borda. Vildi tha ekki betur til en svo, ad einhver opruttinn madur seildist i veskid hennar Runu og nam budduna a brott. Grey thjofurinn hefur samt ekki haft [...]

Read ‘Manudagur til maedu’