H&M
1 October 2004 | Andrés
Rúnu vantaði buxur í dag, þannig að við fórum í H&M í næstu verslunarmiðstöð. Af því mig vantaði ekkert sérstakt gat ég dundað mér við að skoða fötin í kjölfari Rúnu. Allt í einu sá ég að maður þarf ekki að fara lengra en út í næstu búð til að kynnast framandi menningarheimum. Flíkurnar komu frá öllum heimshornum — Kambódíu, Bangladesh, Kína, Rúmeníu, Máritíus, Póllandi og Indlandi — svo maður nefni þau helstu.
H&M er sumsé ekki bara fatabúð, heldur mannfræðileg tilraunastofa!
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Og greinilega atvinnuskapandi í þokkabót. Margir hnýta í að fyrirtæki skuli láta fólk frá þróunarlöndunum framleiða vörurnar fyrir sig en ég held að slíkt sé einfaldlega atvinnuskapandi í þessum ríkjum. Enda þótt launin séu undir evrópskum töxtum þá eru þá á að minnsta kosti sama leveli og almennt gerist í þeim ríkjum sem framleiðslan fer fram. Ég fæ því ekki betur séð en að allir græði á stöðunni, bæði neytendur og þeir sem sitja við framleiðslutækin. En á þessu geta menn auðvitað haft misjafnar skoðanir.
ooh, er ekki H&M besta búð í heimi?! Ha, rúna? Maður getur ekki verið óhamingjusamur ef það er stór H&M búð í nágrenninu! Ég er að koma í heimsókn, tek fyrstu flugvél!