Seint koma sumir.

18 October 2004 | Andrés

Ein af fáum hefðum í sambandi okkar Rúnu er sú, að gjafir frá henni berast mér alltof seint. Þannig fékk ég jólagjöfina í febrúarlok (hún týndist í pósti) og var að fá afmælisgjöfina mína í dag (pöntuð á netinu í júli, kom núna). Tafirnar gleymast þó fljótt því gjafirnar eru svo fínar.

Í afmælisgjöf fékk ég risastóra bók, „Postcards from the Boys“, sem inniheldur um 50 endurgerðir af póstkortum í eigu Ringo Starr. Þetta er mjög eksklúsív útgáfa — bókin er númer 2468 af 2500 eintökum, sem öll eru árituð af kallinum sjálfum. Nú samanstendur Ringosafnið mitt af tveimur hlutum!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.