Smábæjarfílingur
19 October 2004 | Andrés
Í síðustu viku fórum við að upplifa Berlín á svipaðan hátt og Reykjavík — sem lítið pláss. Fimm daga í röð lentum við nefnilega í því að rekast á fólk sem við þekkjum á hinum ýmsu stöðum borgarinnar, allt að tvisvar á dag. Þótt Berlín telji nærri 3,4 milljónir íbúa en Reykjavík talsvert færri leiddi þetta hugann að því að kannski sé ekki svo mikill eðlismunur á þeim. Sama hversu margir búa í þéttbýliskjarnanum þínum ferðu innan tíðar að kannast við þá flesta.
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.