Sigur!
21 October 2004 | Rúna
Loksins þegar við héldum að öll okkar mál hjá háskólanum væru á hreinu hrundi stundataflan okkar eins og spilaborg um daginn. Ein kennslukonan tilkynnti mér að við mættum ekki taka stóran hluta kúrsanna sem við höfðum ætlað okkur. Í stuttu máli sagt eru þessir kúrsar víst ætlaðir erlendum Magister-nemum (en ekki BA-nemum) en við höfðum áður fengið þær upplýsingar að við værum fullkomlega löggild í þeim. Þar sem er orðið of seint að skrá sig í nýja kúrsa sá ég fram á að þurfa að pakka niður í tösku og flytja heim til Íslands þar sem ég myndi ekki fá námslán.
Ég var því frekar hnípin þegar ég sagði Andrési fréttirnar, en hann benti mér réttilega á að þessi framkoma væri ekki mönnum bjóðandi og við myndum ekki taka henni þegjandi. Hann stappaði í mig stálinu af þvílíkum krafti að ég settist við tölvuna full eldmóði og skrifaði langan tölvupóst til umræddrar kennslukonu með hjálp Andrésar.
Þessi tölvupóstur er allra besti texti sem ég hef nokkru sinni skrifað á þýskri tungu, þótt ég segi sjálf frá. Hárbeittur og ákveðinn, en um leið kurteislegur. Til að gefa ykkur smjörþefinn tek ég hér dæmi úr bréfinu:
…Obwohl es etwas dramatisch klingt, dann spricht es die Wahrheit, das unser ganzer Aufenthalt in Deutschland hängt davon ab, dass wir an die Lehrveranstaltungen für ausländische Studierende der Germanistik teilnehmen dürfen. Dafür wünschen wir, dass Sie Ihre Entscheidung nochmal nachdenken werden, und eine Ausnahme für uns beide machen werden, wenn es nötig ist…
Dramatíkin borgaði sig, því daginn eftir hittum við konuna og hún var sem bráðið smjör í höndum okkar. Það hefur heldur ekki sakað að samkennari hennar var á okkar bandi. Því hefur Freie Universität gert undanþágu fyrir tvo íslenska stúdenta, sem vita hvenær er troðið á rétti þeirra og kunna að snúa vörn í sókn.
Freie 0 – Rúna og Andrés 1
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Íslendingar kunna sko að skora!!
Frábært hjá ykkur :) (hehe… ég passa mig á upphrópunarmerkjunum núna)
svona á að gera þetta, sýna þeim hver ræður!! :)