Búðingur dauðans

25 October 2004 | Rúna

Mötuneyti í háskólanum hér á landi eru kölluð „mensa“, sem er latína fyrir „borð“. Mér finnst voða gaman að fara í mensuna í skólanum okkar. Þar er svo mikið úrval og fyrir kemur að maturinn er alls ekki svo slæmur. Hægt er að velja milli kjöt-, fisk- og grænmetisrétta og meira að segja eru í boði lífrænir réttir. Þarna göngum við Andrés um hvort með sinn bakka, virðum fyrir okkur úrvalið og veljum okkur það sem er girnilegast hverju sinni.

Skemmtilegasti hluti mensuferðarinnar er þó alltaf þegar Andrés smakkar eftirréttinn sinn. Ég held að hann hafi aldrei fengið góðan eftirrétt þarna en samt heldur hann því til streitu að fá sér búðing í hvert einasta skipti. Hann forðast að líta á hvaða bragðtegund er í boði þann daginn og leyfir bragðlaukunum að giska. Búðingurinn er aldrei nokkurn tíma jafn góður og hann lítur út fyrir að vera og þegar stungið er skeið í hann hristist hann eins og rassinn á feitu hrossi. Semsagt ekki búðingur heldur eitthvað hlaupsull. Meðan Andrés bíður spenntur eftir að uppgötva hvaða bragð þetta er bíð ég spennt eftir hryllingssvipnum sem iðulega myndast á andliti hans. Búðinginn klárar hann sjaldnast en ég fer út brosinu bættari.

Sama hversu oft Andrés á eftir að kúgast út af þessum búðingi er ég alveg viss um að hann á aldrei eftir að fara í mensuna án þess að panta sér einn slíkan.

2 Comments

  1. baba garmey said on 26 Oct 2004 at 15:17:

    þið eruð snillingar kæra fólk…kunnið sko að skemmta ykkur í hversdeginum….við kunnum það líka hér á fróninu…loftbylgjuhátíðin nýafstaðin…miðbærinn fullur af skemmtilegheitum aldrei þessu vant… heimspekihópurinn er orðinn að fínrafrúahópi eftir að karlmaðurinn í hópnum yfirgaf okkur…við hittumst frúrnar á ekki minni stað en hótel sögu takk fyrir í hádeginu í gær, gerður var með naglalakk, ég var í pilsi, og við döðruðum við unga þjóninn…munaði litlu að rakel klipi í rassinn á honum greyinu…góðar stundir

  2. » Blog Archive » Mensuhéri said on 11 Nov 2004 at 13:07:

    betlarinn Mensuhéri Rúna hefur ekki málað mjög fagra mynd af Mensunni okkar. Hún hefur hinsvegar verið að sækja í sig veðrið síðust [...]

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.