Misjafnn bjórsiður

26 October 2004 | Andrés

Maður finnur dáldið hvaða hverfi borgarinnar maður er staddur í eftir því hvernig bjórúrvalið er á börunum. Á „svölu“ svæðunum getur maður keypt margar tegundir af bjór, en í úthverfum sjaldan fleiri en eina. Þó eru úthverfabarirnir með lúmskt mikið úrval — þótt öðruvísi sé. Gott dæmi um slíkan stað er Hannelores Tagesbar (að bar sé skírður beri nafnið „dagsbar“ er svo allt önnur saga), sem við heimsóttum um daginn. Þar gat maður keypt bjórinn í öllum mögulegum stærðum. Hænuhausar panta 2 eða 3 desilítra, þeir öflugri 4 eða 5 og hetjurnar heilan lítra. Hannelore þarf sumsé að eiga fimm sortir af glösum fyrir sömu bjórtegundina.

Skemmtilegastir eru samt staðirnir sem bjóða bjór í metravís. Einn í hverfinu var með tilboð um daginn á 2 metrum af bjór, sem jafngildir 5 lítrum. Í þeirri stærð minnir bjórglasið frekar á burðarsúlu en leirtau.

3 Comments

  1. Heiða said on 26 Oct 2004 at 23:55:

    Bjór…mikið af bjór og Andrés í sömu andránni…minnir mig bara á eitt skipti þegar hann ákvað að drekka mikinn bjór mjög hratt…alveg ógeðslega mikið af bjór mjög mjög hratt…hvernig var þetta nú aftur Andrés? (hint: ég var að skila BA-ritgerð og vorum að halda upp á það)

  2. Gunna... said on 27 Oct 2004 at 11:26:

    Já ég man líka… Andrés og bjór… og að Andrésa partý… mjög vinsælt eitt haustið…

  3. Svenni said on 27 Oct 2004 at 14:49:

    Barir eru ekki skírðir, ekki frekar en önnur mannanna verk (að börnum frátöldum). Þeir eru hins vegar nefndir eða þeim gefið nafn. Smá guðfræðinördaskapur.

    Andrés er massagóður í bjórdrykkju. Opnar vélindað og hellir í.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.