Markmið Þýskalandsdvalar minnar

28 October 2004 | Rúna

Í Kennaraháskóla Íslands læra nemendur öðru fremur að setja markmið. Það er ekki jafn einfalt og það hljómar, því markmið eru ekki bara markmið. Markmið geta verið yfirmarkmið, einstaklingsmarkmið, þrepamarkmið og svo lengi mætti telja. Sem útskrifaður kennari er ég því ekki í vandræðum með að setja mér markmið með dvölinni hérna í Þýskalandi. Aðalmarkmiðin eru tvö.

Í fyrsta lagi ætla ég mér að taka talsverðum framförum í þýskunni. Ég held að henni fari fram með hverri vikunni svo ég er í ágætum málum þar.

Í öðru lagi ætla ég mér að taka miklum framförum í keilu. Hæfileikar mínir í keilu eru nefnilega varla nokkrir. Ég var á annarri skoðun eftir að hafa tekið nokkra nemendur mína og Andrés í bakaríið í vor, en nú sé ég að heppnin hefur verið með mér í för í það skiptið.

Tvisvar höfum við spreytt okkur með vinafólki okkar hérna úti og í bæði skiptin stóð ég mig afleitlega. Það gerðist oftar að kúlan hitti ekki í neina keiluna en að hún hitti í einhverja, sem hlýtur að vera met út af fyrir sig. Ég náði þó einu sinni að fella allar keilurnar í fyrstu tilraun og þvílík hamingja!

En vitið bara til. Þegar ég kem heim mun ég tala þýska tungumálið reiprennandi og „fella“ og „feykja“ á víxl.

3 Comments

  1. baba garmey said on 28 Oct 2004 at 17:25:

    ó hvað ég veit hvernig þér líður..í fyrsta sinn sem ég spilaði keilu var ég snillingur! það var fella bara í hvert einasta skipti…ég gapti bara á sjálfa mig…en svo næst þegar ég lét til skarar skríða þá sökkaði ég bara feitt…svo að byrjendaheppni virðist vera almennt lögmál í keilu…gangi þér vel! annars er ég byrjuð að blogga aftur á babagarmey.blogspot.com ef ykkur þyrstir í sögur frá fróni..góðar stundir

  2. Svenni said on 28 Oct 2004 at 19:14:

    Hvernig segirðu “fella” og “feykja” á þýðversku?

  3. ragnhildur litla frænka said on 29 Oct 2004 at 00:38:

    Ég hef hins vegar aldrei upplifað þessa margrómuðu byrjendaheppni í keilu, hef bara alltaf verið skammarlega léleg…þess vegna hata ég keilu meira en allt! Svo ekki halda að þú getir reynt að plata mig í keilu þegar þú kemur heim!!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.