Halló Vín
29 October 2004 | Andrés
Þjóðverjar skipa sér í hóp þjóða þar sem í tísku er að vera á móti Ameríku. Hér er almenningur reiður í garð þess „Imperialismus“ sem Bandaríkin þykja sýna í garð annarra þjóða, sérstaklega eftir innrásina í Írak. Þess vegna skýtur dáldið skökku við að sama fólkið og hallmælir alltumvefnandi faðmi frændans handan við hafið er gjarnan í hópi mestu kanasleikja sem fyrirfinnast.
Prýðisgott dæmi um þetta rennur upp um helgi komandi. Þá fagnar Kaninn hrekkjavöku sinni með graskerum og gotteríi. Fín hátíð, gott hjá þeim og allt það. Mér er samt hulið hvernig stendur á því að hver einasta búð Berlínar er með nornir, grasker og köngulóavefi innan um hefðbundnar útstillingar. Af hverju hangir stór borði yfir inngangi annarrar hverrar knæpu sem á stendur „Halloween-Party!“? Ég hef nú jafngaman af partíum og hver annar, en er ekki hægt að gera annað en draga tilefni partíanna frá þjóðinni sem mælist óvinsælust allra í skoðanakönnunum?
Það er ekki einsog mánaðarmótin október-nóvember séu gersneydd öllum möguleikum til hátíðarhalda hér í landi — 9. nóvember féll Berlínarmúrinn til dæmis. Fyrst Íslendingar geta fagnað Júróvisjón eins veglega og raun ber vitni ættu Þjóðverjar að geta slegið upp stórglæsilegu múrdjammi helgina eftir hrekkjavöku Bandaríkjamanna.
4 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
þokkalega sammála..
Múrdjamm…gæti verið sniðugt! Allir hafa svona smá-múra úr frauðplasti í garðinum, og búðirnar selja sérskreytta hamra, og svo á miðnætti fara allir út í garð og smalla múrnum og detta svo rækilega í það….sounds like a good party!
Hef einmitt rætt þetta við húsbræður mína og þeir sem ekta Berlínarbúar kannast bara ekkert við það að það sé töff að halda upp á halloween ekki frekar en valentínusardaginn sem er að þeirra mati bara eins og hvert annað auglýsingatrikk kaufhof des westens..
er þetta ekki bara spurning gott sölutrix? íslendingar eru engu betri sbr einmitt Valentínusardaginn sem e-r minntist á hérna að ofan… Eigum við ekki frekar bara að tala um kapítalismasleikjur??