Freie 0 – Rúna 2

31 October 2004 | Andrés

Öðru sinni hefur Rúna sigrast á Golíatinum sem Freie Universiät er. Í þetta skiptið liggja úreltir kennsluhættir eins prófessorsins í valnum. Þannig er mál með vexti, að ein risaeðlan sem starfar við deildina okkar heldur vikulega 90 mínútna fyrirlestra fyrir 200 manns, en hafði ekki fyrir því að bjóða uppá neitt haldbært efni með þeim (stikkorð, punkta eða eitthvað svoleiðis). Þetta þótti okkur súrt, því varla getur nokkur maður haldið athygli í þetta langan tíma. Þannig að Rúna kvartaði.

Hún nýtti tækifærið þegar námsráðgjafi á kynningarfundi fyrir erlenda nemendur spurði hvort við værum með einhverjar spurningar. Sagði að sér þætti þetta erfitt, sem og örugglega flestum Þjóðverjunum í salnum líka. Þetta var síðla fimmtudags. Fyrirlesturinn byrjaði svo snemma á föstudaginn með því að prófessorinn sagði, „Námsráðgjafinn kom að tali við mig í gær…“

Ekki einasta bjó hann til dreifildi handa útlendingunum í salnum heldur öllum heimamönnunum líka. Viðbrögðin stóðu ekki á sér, gífurleg fagnaðarlæti brutust út í öllum salnum. Það sem fæstir vissu var hins vegar, að þeir voru í raun að klappa fyrir sætu stelpunni í fimmtu röð — henni Rúnu minni.

2 Comments

  1. Ragnhildur litla frænka said on 2 Nov 2004 at 17:57:

    You go girl! :)

  2. Marta said on 4 Nov 2004 at 17:28:

    Koma svo! Gaman að ykkur krakkar mínir.
    Ég sit í Árna með grifflur og í ullarbrókum af langafa, hér er kalt!
    músí músí

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.