Archives for October 2004

Kirkjuklukkur klingja…

10 October 2004 | molar | 5 Comments

Mikið gat ég alltaf pirrað mig á klukknaslögum Hallgrímskirkju á sunnudagsmorgnum. Aldrei hefði mig grunað að hér í Þýskalandi — og það í fyrrum hverfi hins trúlausa Austur-Þýskalands — heyrði ég slög sem aldrei fyrr! Fyrir það fyrsta er ótrúlega þéttriðið net kirkna allt í kring. Innum gluggana okkar flæðir í sæmilegasta styrk hljóðið frá [...]

Read ‘Kirkjuklukkur klingja…’

Fräulein Rúna

8 October 2004 | molar | 2 Comments

Undanfarna mánuði hef ég orðið fyrir nokkurri gagnrýni frá Andrési fyrir að vera matvönd þegar kemur að þýskum mat. Honum hefur þótt afar undarlegt að ég sé treg við að setja hinar og þessar pylsur, sauerkraut og önnur herlegheit inn fyrir mínar varir. Í dag held ég að ég hafi gert hann svolítið stoltan. Ég [...]

Read ‘Fräulein Rúna’

Að samlagast

8 October 2004 | molar | 1 Comment

Í dag gaf ég mér óskaplega fína bók með uppskriftum og upplýsingum um þýska matarmenningu, Culinaria, deutsche Spezialitäten. Innan skamms verð ég að fullu samlagaður menningunni — get borðað svínaklaufir og lifrarhleif einsog ekkert sé. Eitt það áhugaverðasta sem ég hef rekist á nú þegar tengist vínarpylsum. Bókin ljóstrar því nefnilega upp að pulsurnar eigi [...]

Read ‘Að samlagast’

Sænsk þjóðernishyggja

7 October 2004 | molar | 3 Comments

Nú er nokkuð liðið síðan við fórum síðast í IKEA — nógu langur tími til að við séum farin að rifja ferðirnar upp. Eitt af því sem vakti hvað mesta athygli hjá okkur er hversu mikið búðirnar hérna gera útá að vera sænskar, miðað við hversu lítið það er gert uppá Íslandi. Það fyrsta sem [...]

Read ‘Sænsk þjóðernishyggja’

Líf án sjónvarps

5 October 2004 | molar | 3 Comments

Um þessar mundir hef ég afrekað að vera sjónvarpslaus í þrjá mánuði. Fyrir þá sem ekki vita, er ég algjör sjónvarpsrotta og því ekki lítið átak að lifa án þessa ferhyrnda vinar míns. Kostir sjónvarps eru ótvíræðir. Fyrir utan hið augljósa skemmtanagildi ber að nefna gildi áhorfs fyrir þýskukunnáttu útlendinga. Flestir kannast við þá tilfinningu [...]

Read ‘Líf án sjónvarps’

Konungur Þýskalands

3 October 2004 | molar | 1 Comment

Flestir keisarar Þýskalands síðustu alda voru af ætt Hohenzoller. Ættin dó síður en svo út þó keisaradæmið væri sett af — enn lifir drjúgur hópur þessa aðalsfólks í Þýskalandi. Æðstur þeirra er Georg Friedrich Prinz von Preußen (kúnstugt nafn með tilliti til þess að Prússland er ekki til lengur), þremur árum eldri en við Rúna. [...]

Read ‘Konungur Þýskalands’

Sigga og Grétar

3 October 2004 | molar | 1 Comment

Margir Þjóðverjar búa, skiljanlega, yfir misréttum og misfullkomnum upplýsingum um Íslandið okkar. Flestir hvá til dæmis þegar smæð þjóðarinnar ber á góma eða að við eigum eigið tungumál. Í gær hittum við hins vegar mann sem skar sig úr fjöldanum. Hann vissi ekki of lítið um okkur, heldur þóttist vita meira en satt var. Hann [...]

Read ‘Sigga og Grétar’

Haustblíða

3 October 2004 | molar | No Comments

Ég veit varla neitt ljúfara en algjörlega áhyggjulausa sunnudaga, þegar eina verkefnið er að njóta lífsins og slappa af. Slíkur dagur er að kvöldi kominn. Þótt við hefðum verið í partíi fram á nótt vöknuðum við tiltölulega fersk í morgun. Eftir hressandi sturtu og kaffibolla héldum við á flóamarkaðinn í Mauerpark, þar sem vinir okkar [...]

Read ‘Haustblíða’

H&M

1 October 2004 | molar | 2 Comments

Rúnu vantaði buxur í dag, þannig að við fórum í H&M í næstu verslunarmiðstöð. Af því mig vantaði ekkert sérstakt gat ég dundað mér við að skoða fötin í kjölfari Rúnu. Allt í einu sá ég að maður þarf ekki að fara lengra en út í næstu búð til að kynnast framandi menningarheimum. Flíkurnar komu [...]

Read ‘H&M’